Kósýland

Velkominn í minn heim

28.07.2008 01:39:47 / kósý

Andvaka.....

... já ég er andvaka og er að farast úr spenningi!! Ég er að fara inn á Akureyri í fyrramálið til að ná í Siggu mína:haha: og mig HLAKKAR SVOOOOOOO mikið til:haha: Hún ætlar að vera í rúma viku hjá mér:haha: Þannig að það er mikuð um gleði í mínu hjarta núna:haha: Það verður svo gott að fá hana loksins til mín aftur.. við hittumst alltof sjandan þar sem að hún býr bara í danaveldi og er ekkert á leiðinni að flytja þaðan.

Annars síðan síðast þá gekk afmælið hans Sindra mín bara ljómandi vel og hann var mjög ánægður með daginn:haha: Hann fékk fullt af flottum gjöfum og það var alveg ótrúlega gaman að fylgjast með' þeim öllum þegar hann var að opna pakkana sína því hinir afmælisgestirnir voru ekki síður spenntir og ánægðir með gjafirnar:haha: Við gáfum honum fótbolta mark og bolta og var farið beint í það að setja það saman svo að það væri hægt að fara út og skemmta sér:haha: Hann fékk líka alveg svakalega vatnsbyssu sem að var mikið notuð þennan dag, og mamma mín fékk nú líka aðeins að finna fyrir bunu úr henni:haha:

Það er búið að vera alveg órtúlega gott veður hérna síðustu daga og það liggur alveg við að maður bráðni bara hér. Við Ingvar vorum mikið úti í gær í göngutúrum og að hoppa á trampólíninu okkar. Við kíktum uppeftir til ömmu og afa og þar komst hann Ingvar minn nú í feitt.... afi var að vökva blómin sem að endaði svo í agalegum vatnslag þeirra á milli:haha: Hann nefnilega náði alveg hvernig þessi græja virkaði og náði henni fljótlega af afa og rennbleyti hann:haha::haha: Það var ansi skemmtilegt að fylgjast með þeim félögum.

Jæja ætli ég láti þetta ekki gott heita í bili og bið bara að heilsa að sinni og ég kannski reyni að yfirbuga spenninginn minn og komi mér í háttinn:haha:  see ya

» 15 hafa sagt sína skoðun

09.07.2008 00:46:43 / kósý

mikil gleði á mínu heimili=)

já það var mikil gleði á mínu heimili í morgun þegar yngri prinsinn vaknaði og sá hver var að vekja sig:haha: Loksins var stóri bróðir komin heim:haha: Hann alveg argaði nafnið hans og bara knúsaði hann og kyssti:þ Þeir voru alveg ótrúlega krúttlegir drengirnir mínir þessa stund í morgun8) (reyndar eru þeir það ALLTAF!!) Ég fór sem sagt í Lund í gær til að ná í hann og þap var svoooooo goooootttt að fá hann í fangið aftur:haha: Núna er maður loksins orðin heil manneskja! Ég var hálf hérna bara með Ingvar heima, það vantaði svo mikið! En þetta var alveg ótrúlega skemmtilegt hjá honum þarna úti og hann hafði frá alveg fullt af skemmtilegum hlutum að segja og talaði bara sænsku=) Það var bara fyndið!! Hann er orðin frekar brúnn, það kom mér nú ekkert á óvart því að hann má nú ekki frétta af sól einhversstaða þá er hann orðin brúnn:haha: Og orðin alveg hvíthærður!!! Sæti sæti strákurinn kom með gjöf handa mömmu gömlu sem að hann valdi sjálfur:haha: Það var rosalega flott armband. Og hann sagði að ég gæti alltaf notað það ´þegar ég ætlaði að vera pæja:haha: Hann er svo mikið krútt!!!

En annars gengur allt sinn vanagang hér á skerinu bara vinna og aftur vinna og bráðum þarf ég að fara að halda upp á 6 ára afmælið hans Sindra, það er bara gaman að því  en samt einhvern veginn skrítið því mér finnst hann ekki vera orðin svona gamall:haha: Mér finnst að hann eigi bara að vera ungabarn ennþá:þ
Jæja bið að heilsa bara í bili

» 7 hafa sagt sína skoðun


Myndir
Könnun
Er ekki lífið DÁSAMLEGT???