Kósýland

Velkominn í minn heim

30.05.2008 22:58:33 / kósý

Er að herma eftir Láru=)

Ef ég væri í Kvikmynd
Hæ hæ, ég var að skoða síðuna hjá Láru og sá þetta og fannst þetta voða fyndið þannig að ég ákvað að herma bara Hahaha , þetta er skemmtilegt. Bara að fara í itunes og setja á shuffle og skrifa lögin sem að koma!


Opening credits: If I promised you the world- Magni

Waking up: Gone to California- Pink

First day at school: Here we are- Breaking Benjamin

Falling in love: In my dreams- Wig Wam

Fight song: Break in city (storm the gate!) Tenacious D

Breaking up: Life of my own- 3 Doors Down

Prom: Classico- Tenacious D

Getting back together: Wicked game

Wedding: How do you do! - Roxette

Birth of childPiece of shit car song- Adam Sandler

Final battle: You shook me all night long-

Death scene: Time is runnig out- Muse

Funeral song: Love Buzz-Nirvana

End credits: Kryptonite- 3 Doors down


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.05.2008 00:38:40 / kósý

ég er brein=) hehehehehe

8|.... heheh já ég er algjört brein!!8| Það er nú ekki oft um ævina sem að ég hef getað montað mig af gáfum mínu:haha::haha: en sagði ekki einhver dúddi að einhvern tíman væri allt fyrst?8) Já ég var sem sagt að fá einkunn fyrir áfangann minn sem að ég var að taka í vetur, ég veit reyndar ekkert hvað ég fékk í þessu blessaða prófi mínu sem að ég tók þarna um daginn en það er samt nokkuð ljóst að ég hef náð, því heildareinkunin mín fyrir áfangann var 9:!:8| Já gott fólk ég sagði 9 og æ kidd jú nott hérna! Ég var alveg ótrúlega ánægð með þessa einkun mína, því það er jú ekki oft sem að ég hef getað sagt frá einkunum mínum án þess að vera niðurlút og hálfpartinn muldra þær:haha:
En þá er það bara í haust heilbrigðis og lyfjafræðin og ef maður stendur sig vel þar þá er það bara útskriftarteiti!!:haha: Þarf samt að finna mér einhvern góðan til að hjálpa mér við það helv.... er einhver sem að býður sig fram? Einhver sem að veit um einhvern sem að getur hjálpað mér?? Ég veit að eflaust margir hugsa núna..... hjálpa henni???? en það er ekki hægt, henni er ekki viðbjargandi!!!! hehehe dettur strax ein manneskja í hug...... minn ástkæri bróðir:haha::haha::. En já þannig er það nú.... það var sett upp trampólín hér í dag, gerði nú ekki mikið í því að hjálpa til við það,,, ég fékk mjög duglega menn með mér í verkið og þeir voru sko enga stund að henda þessu upp=) Þannig að hann Sindri minn gat tekið gleði sína á ný, þetta er nefnilega búið að vera mikið áhyggjuefni hjá honum!! Því hann áttaði sig alveg á því að núna værum við náttúrulega á stað sem að við ættum ekki og alls ekki neinn garður sem að fylgir íbúðinni þnnig að hann hafði miklar áhyggjur af því að trampólínið yrði kannski ekkert sett upp þetta sumarið! en hann sofnaði hinn ánægðasti hér í kvöld algjörlega búin á því eftir hopp=) og hann náði meira segja mömmu sinni í smá hopp með sér:haha:
Jæja ég bið bara að heilsa og verð spennt að sjá hvort kommentin verði jafn mörg og í pistlinum hér fyrir neðan=) spurning hvort þeir félagar finni sér eitthvað til að þræta um eftir þennan pistil:haha:
see ya


» 9 hafa sagt sína skoðun

07.05.2008 23:01:06 / kósý

Legið á bæn......

.... já á þessu heimili er legið á bæn þessa dagana... þó að ég sé kannski ekki sæu trúaðasta þá ákvað ég samt að ath hvort þetta mundi eitthvað virka:d Þannig er nefnilega mál með vexti að ég var í prófi á mánudaginn og mér fannst mér barasta alls ekki ganga neitt sérstaklega vel:evil: En það er reyndar kannski ekki alfarið mér að kenna þar sem að nokkrar spurningar þarna voru úr efni sem að ég hef bara aldrei séð!!! Ég nefnilega´fékk ekki allt frá kennaranum mínum sem að ég þurfti að lesa fyrir prófið!! en eins og ég segi það er bara legið á bæn og beðið og vonað að ég fái háa einkun fyrir ritgerðina mína og hin verkefnin sem að ég hef skilað, því þá er ég seif:$ Því sjálft prófið gildir ekkert svo svakalega mikið allavega ekki mikið miðað við allt hitt:!: Svo komst ég að því núna á mánudaginn að ef að allt gengur upp þá ætti ég að útskrifast um jólin8| Ég var ní frekar hissa því ég hélt að ég ætti mikli meira eftir,  en þá á æeg bara einn áfanga eftir sem að ég fer í haust sem er Heilbrigðis og lyfjafræði8| og ef ég næ því þá er ég orðin Félagsliði:!: og þá komum við að öðru vandamáli...... hvað á ég að gera????? Ég nefnilega hélt eins og ég sagði hérna áðan að ég ætti meira eftir og hefði þar af leiðandi meiri tíma til að hugsa um það hvað ég ætlaði að gera svona í náinni framtíð....en nei það er bara ekki mikill tími til þess!!  Þannig að ég er bara alveg komin í mínus!.... langar mig að læra meira?...... ætla ég að búa hér áfram með þessa menntun...... vinna í fjallalambi áfram með þessa menntun sem að nýtist mér ekkert þar?........ Ég bara er alveg í vandræðum...... það er um svo margt að hugsa.... hvað vil ég búa....? er ég eitthvað betur sett annarstaðar....? Ég veit samt að mig langar meira að vinna með fötluðum börnum frekar en öldruðum og það verður bara að segjast að það er ekki mikið um  slíka vinnu að fá hér á bæ:!:  já þetta er stembið.....
en já annað gengur sinn vanagang bara... mikið að gera í vinnunni allir að panta böns af grillkjöti og maður er bara á haus í því, eins skemmtilegt og það er:evil::haha:

Jæja ég er hætt að tuða hérna inni í bili og bið bara að heilsa:haha:
see ya!!!!

» 20 hafa sagt sína skoðun

01.05.2008 00:17:32 / kósý

Læra og aftur læra

Halló og hæ8)
Já lífið snýst um lítið annað hjá mér þessa daganna en að læra.... já og vinna....og auðvita börnin mín:haha: En ég er annars alveg að verða búin á öllum þessu lærdómi en þetta er samt gaman ekki misskilja mig:!:´Ég er búin að hafa mjög gaman af þessu námi mínu þó svo að þetta sé bara eitt fag og ég hefði alveg viljað taka meira en það sem var í boði er mín barasta búin með. Ég hef komið sjálfri mér ansi mikið á óvart núna í þessu! Ég hef nú aldrei verið talin mjög sterkur námsmaður og´hef alltat átt frekar í erfiðleikum með það að læra, eitthvað annað en kvikindið hann brósinn minn:haha: En ég fékk út úr verkefni um daginn og fyrir það fékk ég 108| Ég velti þessu lengi fyrir mér og var eiginlega alveg ákveðin í því að kennarninn hefði nú gert einhverja vitleysu, annað hvort ætti að vera komma þarna á milli 1 og 0 eða þá að þetta ætti að vera öfugt..... líka þar sem að þetta var siðfræði verkefni8| Og það voru nú ekki allir að kaupa það að ég hafi fengið hátt í siðfræði:!: Ég fékk alveg að heyra "ÞÚ 10 Í SIÐFRÆÐI??? NEEEEIIIIII ÞAÐ GETUR EKKI VERIÐ" En jú gott fólk Kristín litla fékk 10 í siðfræði! og ekki nóg með það þá fékk ég aðra 10 fyrir annað verkefni sem að ég skilaði!!! Ég hef nú held ég nánast ALDREI fengið 10 fyrir eitthvað sem að ég hef gert í skóla og hvað þá28| Þannig að ég er bara búin að vera voða montin af sjálfri mér upp á síðkastið!! Á nú reyndar eftir að fá einkunn fyrir ritgerð sem að ég skilaði og ég býst nú ekki við neinni 10 þar.... og svo er próf á mánudaginn og ekki er ég að búast við því að ég geri einhverjar rósir þar..... ég hef aldrei verið mjög sterk í að taka próf.... verkefni eða ritgerðir allt í lagi en ekki próf.....:$ En það þýðir ekkert að vera svartsýnn..þetta gengur örugglega bara ágætlega....eða við segju það allavega:haha::haha:
Ég er alls ekki sátt við þetta veðurfar hérna úti...... það var svo æðislegt að fá svona sól og hita og maður var loksins að stíga upp úr skammdegis þunglyndinu og farin að lýta lífið björtum augum með vor í lofti og annað..... en NEI þessi þarna uppi er greinilega ekki í gúddífíling hérna!! Já já einmitt allir að fara í gott skap... nei það gengur náttúrulega ekki ..... best að hrúga snjó og einhverju ógeði á liðið núna!!! HALLÓ og góðann daginn sko..... það þarf eitthvað að senda gaurnum einhverjar gleðipillur!!! Thank´s for nothing!!!!hehe!!
En já annars er kannski ekki mikið annað að frétta nema það að hann Sindri minn ætlar að yfir gefa hreiðrið í mánuð í sumar og leika sér með Bensa út í Svíþjóð!! Ég veit ekki alveg hvernig mamma hans á eftir að höndla þennan tíma,þetta verður örugglega frekar skrítið að hafa han ekki hérna, en þetta á eftir að vera alveg meiri háttar ævintýri fyrir hann og þá er bara ekkert nema gott að segja um það:haha:
Jæja bið að heilsa í bili....... seeeeeee ya!!

» 5 hafa sagt sína skoðun


Myndir
Könnun
Er ekki lífið DÁSAMLEGT???