Kósýland

Velkominn í minn heim

26.02.2008 23:34:04 / kósý

Hvað er eiginlega málið......

.... með barnaefnið í dag???!!! Ég er bara ekki að skilja þetta, það mætti halda að þeir sem eru að búa til barnaefni í dag haldi hreinlega barasta að börn séu hálfvitar. Þetta er alveg með ólíkindum, auðvita kemur eitt og eitt svona inn á milli sem að er í lagi en halló!!!! Hvað varð um Kærleiksbirnina, Brúsk Íkorna eða Bangsa bestaskinn!!! Það var sko alvöru!!!! Það getur vel verið að foreldrum mínum hafi fundist þessir þættir vera algjört frat en í minningunni er þetta alveg snildarbarnaefni!!! Mig langar agalega til a sjá eitthvað af þessu aftur og já  strumparnir, ahhh good times!! Stundum langar mig bara að fá að vera barn aftur og þurfa ekki að hafa áyggjur af neinu og þurfa ekki að hafa neina ábyrgð, það væri svoooo gott!
En já það var nú ekkert meira merkilegt sem að ég hef að segja, var bara að horfa á barnaefnið með drengjunum mínum í dag og ég var alveg hneiksluð!!! Bið bara að heilsa í bili

» 13 hafa sagt sína skoðun

22.02.2008 23:42:12 / kósý

Til hvers....

.... að búa til sögur sem eru ekki sannar....
.... að trúa sögum sem þú heyrir.......
.... að trúa.....

» 7 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 23:27:42 / kósý

Ekki svo lokuð eftir allt saman=)

Það er nokkuð ljóst að ég verð að fara að trúa meira á sjálfa mig;) Ég var ekkert svo lokuð eftir allt saman, ég gerði þetta fína verkefni og er bara nokkuð ánægð með það8) Gunna Magga kom til mín og fór yfir það með mér og hún setti nú lítið út á það þannig að ég er bara nokkuð brött með mig:d
Ég get ekki sofnað núna og er eiginleg frekar pirruð bara yfir því, ekkert alvarlega samt, var sko að svæfa strákana áðan og sofnaði með þeim og vaknaði svo aðeins og ákvað  að það væri bara best að koma sér í háttinn af því að ég var svo þreytt, en svo þegar ég var lögst upp í rúm þá hringdi síminn og ég rauk hérna fram og varð svona agalega fersk við það þannig að hér ér ég:haha:
Það er svo sem ekkert mikið að frétta hér hjá mér og mínum en ekkert slæmt svosem þannig að það hlýtur að teljast nokkuð gott;)
Ingvar Örn er alltaf að verða duglegri og duglegri að tala og maður fær oft einhverja skammarræður frá honum sem maður skilur bara svona eitt og eitt orð en það er samt bara fyndið:haha:
Þorrablótsatriðið frá Ottói var alveg snilld, ég sá það reyndar ekki á blótinu sjálfu því að ég fór heim að svæfa og það var sýnt akkúrat á meðan, en eins traustur og góður vinur hann Ottó minn er þá kom hann til mín á sunnudaginn áður en hann fór til Rvk og sýndi mér atriðið- Takk fyrir það:haha: Maður sá nú samt kannski aðeins meira þarna en það sem maður er vanur en maður tekur því bara:haha:
En já ég er að hugsa um að láta þetta gott heita í bili þannig að ég kveð að sinni:haha:
See ya8)

» 6 hafa sagt sína skoðun

13.02.2008 23:51:24 / kósý

lokuð!!!!

Já mikið rétt ég er alveg lokuð!!! Ég er að reyna eftir minni bestu getu að læra heima:$ Það er nú ekkert að ganga neitt rosalega vel þar sem að ég er barasta alveg lokuð fyrir þessu. Ég er að reyna ð gera verkefni um það hvaða tilfinningar börn geta verið að glíma við, með hinum ýmsu spurningum og hegðunum. Auðvita er það mjög einstaklingsbundið því ekkert 1 barn er eins og guði sé lof fyrir það:haha: Allavega eru synir mínir ekkert líkir nema kannski bara skapið:haha: En allavega er ég búin að sitja hérna sveitt við það að reyna að leysa þetta verkefni en ég held að ég verði að játa mig sigraða allavega í kvöld og reyna bara að byrja upp á nýtt á morgun;)

Annars fórum við Sindri Þór á Akureyri á laugardaginn og Íris okkar kom með okkur. Það gekk bara mjög vel hjá tannlækninum en hann hafði aðeins áhyggjur af því hvort tannlæknirinn þyrfti nokkuð að bora í tennurnar hans, og svo var hann alltaf að spyrja út í öll þessi hljóð sem hann var að heyra fram á biðstofu og hvort þau myndu öll vera þegar hann færi þarna inn:d En þær tennur sem eftir í honum eru eru allar bara heilar og fínar! Eftir tannlæknaferðina þá var haldið upp á ma vistina að ná í Kristveigu og þaðan farið á Glerártorgið til að kíkja aðeins í búðir og næra sig. Að því loknu var svo haldið í haggarann og aðeind blóðgað budduna þar:evil: Að öllu búðarrápi loknu:haha: var svo haldið á skautasvellið og gert sig kláran til að sýna snildartakta á sdkautasvellinu. Ég gamla konan náði nú að toppa þessar ungu stúlkukindur og halda mér uppistandandi:haha: Annars var ég ótrúleg stolt móðir þennan dag!!! Mér fannst Sindri Þór alveg ótrúlega duglegur að halda sér uppistandandi miðað við það að þetta var bara í annað skiptip sem hann fer að skauta á skautum:haha: 
Á heimleiðinni stöppuðum við á Húsavík og tókum með okkur pizzu í H'ol sem að við borðuðum þar með heimilisfólki, við vorum komin hér á skerið um hálf 9 held ég.

Já ég nenni ekki að skrifa meira hérna núna það bíður betri tíma bara see ya beibís:haha: 

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 22:31:10 / kósý

klikkedí klikk eða eitthvað=)

halló halló

Já þorrablótið í Kelduhverfi er semsagt liðið og dálítið síðan bara og hversdagleikinn tekinn við á ný. Þetta blót var bara hið ágætasta ég borðaði alveg ógrinni af hákarli:haha: sumum fannst nú alveg nóg komið en ég hefði getað haldið endalaust áfram þetta var svo hrikalega GOTT:haha:. Ég dansaði nú ekki mikið svona framan af en é g dansaði við Bjarka Þór og svo kærastann hennar Salbjargar hann var ansi duglegur að halda manni við efnið:P Svo átti ég stefnumót á dansgólfinu kl1 um nóttina og dansaði þar einn dans við einn ágætann mann:haha: Svo í restina misstum við stelpurnar okkur alveg í dansinn og var það bar fínt, ég var nú reyndar eitthvað voðalega mikið fyrir þarna á gólfinu en það er kannski ekkert nýtt að ég sé einhversstaðar fyrir fólki:haha: En allavega fékkég fullt af höndum og olbogum í andlitið og nokkur trömp á fæturna. Eftir blótið var svo haldi í litla Skúlagarð en þar gisti ég og þar var þorramatnum aftur gerð skil fyrir háttin og voru heitar umræður við matarborðið um umskurð drengja og stúlkna, ég reyndi nú bara að halda mig fyrir utan þetta málefni. Svo var bara laggst á koddann eftir ágæt kvöl, sem hefði reyndar mátt fara aðeins öðruvísi á tímabili því það datt niður gríma sem átti ekki að fara niður en ekki orð um það meir:evil: En daginn eftir var bara haldið heim og fór ég í bollukaffi heim til mömmu og pabba og svo aftur til þeirra í sunnudagssteikina.

Vinnan hefur bara gengið sinn vanagang eins og alltaf það er lítið um að vera þarna annað en bara pantanir og pakka og pakka!! Á morgum þarf ég að fara í gegnum skilavöru sem er alveg mitt uppáhald:evil:

Skólinn er nú svo sem komið lítið af stað hjá mér finnst mér en ég er allavega búin að ná mér í aðeins heimildir fyrir lokaritgerðina mína og hef hugsað mér að fara í það að byrja á henni sem fyrst8)

Núna á laugardaginn förum við Sindri Þór til akureyrar því hann er að fara í eftirlit hjá tannsa og ætla ég að reyna að gera eitthvað skemmtilegt með honum fyrst að við verðum bara tvö saman. Ingvar Örn ætlar að vera hjá ömmu sinni í lundi meðan við *Sindri förum í þessa ferð. Annars missti Sindri nú sína 3 tönn í gær þegar hann var á sleða með pabba sínum þannig að hann er frekar tannlaus að verða drengurinn og ekkert bólar á fullorðinstönnum þó að það sé frekar langt síðan hinar 2 fóru, Haddi tannsi getur kannski gefið einhverja skíringu á því.

Annars var náattúrulega öskudagur í dag eins og allir vita og það komu náttúrulega öll börnin í vinnuna til okkar að syngja fyrir okkur. Sindri var Hulk og Ingvar var lítil randafluga:haha:

Jæja ég held að ég kveðji bara að sinni see ya


» 16 hafa sagt sína skoðun

02.02.2008 11:49:04 / kósý

akureyrarferðin mikla

jæja ég var semsagt á akureyri í gær og var það bara alveg ágætt fyrir utan helv... ferðina í ríkið8| mér leið alveg eins og fífli þarna með 7 kassa af bjór fullt af flöskum og drasli og heildarupphæðin sem að ég verslaði fyrir var 56 þúsund og eitthvað og átti ég nú bara rétt 5000 þúsund af því!!! ég ætla ALDREI að láta þessa þjóðverja vita af því að ég sé eitthvað að fara í ríkið!! svo var ég alveg heillengi að ganga frá öllu þessu magni og stelpan sem var á eftir mér starði bara á mig eins og allir aðrir sem voru í þessu blessaða ríki og hún sagði bara pent við afgreiðsu frúnna að hún væri nú bar með þetta sko og lyfti upp sinni rauðvínsflösku! Andskotinn þetta var meiri biluninn og svo þurfti ég líka að fara í bónus fyrir þessa gaura og kaupa 14 dunka af einhverju fjandans ístei:klikk: ég var nú að verða frekar pirruð á þessu öllu saman. En fyrir utan þetta var dagurinn bara ágætur svona almennt, þrátt fyrir sársaukafullar bjútíaðgerðir en maður lætur sig nú hafa ýmislegt:haha:8| Heimferðin gekk nú ágætlega svona framan af það var alveg fínt veður en þegar ég var komin í mína heimabyggð þá versnaði það nú eitthvað og oft á tíðum sást ekki neitt og það varð líka til þess að ég rann aðeins út af veginum rétt við silfurstjörnuna en það var alls ekki alvarlegt held að ég hafi verið á svona 10km hraða þannig að ekkert alvarlegt gerðis og ég er alveg vissum þaðáð ég hefði komið bílnum upp á veginn ef það hefði ekki verið fyrir þennan fjandans bjór í skottinu!!:evil: ég reyndi að bakka aftur upp á en skottið rann bara niður:evil: en þetta var allt í gúddí gunna magga var þarna á eftir okkur og var hringt í gumma á núpi og hann kippti mér upp á veginn þannig að þetta fór allt saman vel, en ég lét sko þessar þjóðverjadruslur heyra það þegar ég kom með bjórinn til þeirra og sagði að þetta gerði ég aldrei fyrir þá aftur og þeir bara hlóu að mér:evil:

Stefnan er tekin á blót í kelduhverfi í kvöld og það er bara ágætis stemmari fyrir því en samt ekkert alveg komin í gírinn en hann kemur vonandi í kvöld:haha: annars er ég nú bara að bíða eftir því að óli í búðinni sé búin að þýða þennan blessaða sjálfsalu eitthvað upp svo ég geti tekið bensín og farið og náð í strákana mína.

see ya

 


» 4 hafa sagt sína skoðun


Myndir
Könnun
Er ekki lífið DÁSAMLEGT???