jæja það tókst hjá mér að flytja seinust helgi þannig að ég er búin að vera hérna í næstum viku og líður bara mjög vel hérna. Það er nú ekki allt komið upp eins og það á að vera en þetta svona mjakast, var td áðan með Hauk frænda minn hérna hjá mér að setja upp hillu og króka í loftið fyrir óróana mína og þeir eru komnir upp þannig að mér líður strax betur ÉG ELSKA óróa, ég mundi vilja fylla allt húsið af þeim. Ég lét hann líka hengja upp risa blævæng fyrir ofan rúmið mitt sem að Helga Lína mín gaf mér einu sinni hún gaf mér líka annan minn sem ég er bara ekki búin að finna enþá.Svo vona ég að ég nái að græja herbergi stráknna um helgina meðan þeir eru hjá pabba sínu, það þurfti bara að gera við rúmið hans Sindra Þór áður en það kæmi hingað og svo þarf að festa hillisamstæðuna hans við vegg til að hún standi, þannig að dótið þeirra er bara búið að vera í stofunni síðan við komum hinngað og allt svona rusl og dras hefur hennt inn í herberginu þeirra.
Annars er það að frétta af skólanum mínum að mér var semsagt að mæta í gær en ekki seinasta mánudag en svo þegar ég var mætt þá barasta var ég búin með fagið sem var verið að kenna í gær og á ekki að mæta fyrr en næsta mánudag! þannig að það frestast enn einu sinni þessi fyrsti skóladagur minn. Ég verð nú að viðurkenna að ég var með nettann fiðring í maganum í gær áður en ég fór, það er pínu skrítið að vera að setjast aftur á skólabekk en samt er það skemmtileg tilfinning líka og ég vona bara að ég geti staðið mig vel. Ég er bara í einu fagi þannig að þetta ætti ekkert að vera svo rosalega erfitt fyrir mig til að byrja á aftur. Svo verður líka bara gott að hafa eitthverja menntun þegar ég hef mig í það að flytja héðan þá hef ég aðeins meira val heldur en bara rækja eða kjötvinnsla!!!
Núna 1feb ætla ég að láta Ingvar Örn vera allan daginn á leikskólanum en ekki bara til 12 en Sindri Þór verður hins vegar bara til 12. Ég ákvað það að væri betra svona svo að ég mundi ekki drepa ömmu mína endanlega á barnapössum
Það er mikli léttara fyrir hana að taka bara Sindra því það þarf ekkert að hafa svo rosalega mikið fyrir honum. En þetta verður nú samt enginn léttir fyrir blessaða veskið en ég borða þá bara minna sem er kostur útaf fyrir sig
Já ég held að ég láti þetta bara nægja í bili og fari kannski að reyna að gera eitthvað