Kósýland

Velkominn í minn heim

27.08.2007 15:23:39 / kósý

hellú

Hæ hæ allt gott að frétta af mér og mínum bara!!! Ingvar skríður út um allt og stendur alls staðar upp og labbar með fram öllu!!!! Sindri er alltaf jafn duglegur bara í öllu sem að hann tekur sér fyrir hendur.

Var að henda inn nokkrum myndum þær eru sumar undir fjölskyldan mín og svo reykjavík, jæja verð að hætta núna!


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 11:26:44 / kósý

minning um mann!

....já lífið tekur alltaf enda hjá okkur og nú er sú stund runnin upp hjá einum gömlum manni!!! Manni sem að gat búið til þvílíku listaverkin úr grjóti, spítum eða beinum! Garðurinn er eins og listigarður allt svo fallegt manni líður eins og að maður sé komin í einhveja ævintýraveröld! Þessi maður var alltaf hress og skemmtilegur hann kallaði strákana mína Hreppstjóra!!!  Man eftir því þegar ég var lítil og sat oftar en ekki í þessu fallega garði þá kom hann til mín og bað mig að eiga við sig orð. Ég labbaði með honum og að 2 haldapokum sem að voru fullir að klinki og hann sagði við mig að ef að ég gæti loftað þessum pokum þá mætti ég eiga innihaldið!!! Ég tók sko á honum stóra mínum og lagði allt í þetta og varð allaveg á litinn í framan en ég rétt hafði þá, ekki það að þó svo að ég hefði ekki haft þá þá hefði hann nú samt sem áður gefið mér þá!!! En ég var mjög stolt yfir styrk mínum og var alveg hrikalega montin þegar ég mætti með þessa poka í bankann!!! Svona var hann langafi í Kópavogi!!! Ég vona að hann sé komin á betri stað og það er sko eins gott að þessi þarna uppi reddi manninum einhverju til að halda áfram listinni sinni!!! Elsku afi guð varðveiti þig og gefi þér frið!!! Þúsund kossar til þín frá mér og mínum!

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.08.2007 19:12:18 / kósý

Reynslunni ríkari

Já ég ákvað að prófa að skreppa eina ferð með sjúkrabílnum hérna á mánudaginn, maður verður alltaf að prófa eitthvað nýtt!!! Þetta var svo sem ekkert sérstaklega skemmtileg ferð en ég get þá allavegana sagt það að ég hafi prófað þetta!! En það verður nú samt að segjast að þetta eru nú ekki þægilegasti ferðamátinn!! Ég t.d vissi nokkurn veginn alltaf hvar ég var því ég fann hverja einustu holu og hverja einustu hossu í veginum! Þegar inn á eyrina var komið tóku nú við hinar ýmsu rannsóknir og að einhverjum ástæðum var alltaf það mikilvægasta að ath hvort að ég væri ólétt!!! Veit nú ekki alveg af hverju og ég reundi nú að segja þeim að það væri alls ekki en ég var nú ekkert tekin trúarleg með það!!! Og svo komu þær eftir að þær voru búnar með þetta þungunar próf voða glaðar á svipinn "jæja elska þú ert allavega ekki ólétt" NEI ég vissi það!!!! Mér fannst bara næstum eins og þær vildu nú alls ekki að ég væri eitthvað að fjölga mér!!!! En dvöl mín þarna var alveg óendanleg að mínum mati! Ég var marg sinnis færð um stofu og í eitt skiptið var ég höfð fram á gangi!!! ÉG var eiithvað að reyna að vera gæðaleg við Tryggva minn þarna og segja allskonar fallega hluti um hann en hann sagðist ekkert taka mig trúanlega þar sem að ég væri uppdópuð!"!!! Þegar leið á daginn komust þeir svo loks að því að þetta væri nýrnasteinn og þá var ég bara send heim og með þau fyrirmæli að bara doka eftir honum!!!! Takk fyrir það gott fólk! Jú og svo ákváðu þau að launa mig með því að gefa mér rassastíla eins og börnunum!!":$

já en annars er svo sem allt ágætt að frétta ég reyndar varð að fara með Ingvar til læknis í gærkveldi því að bibbinn var alls ekki eins og að hann á að sér að vera!!! Þá er hann greyið með einhverja forhúðarbólgu!!! Allir mínir peningar þessa dagana fara í lækniskostnað eða lyfja kostnað!!! Ég vona að þessari ógæfu fari nú að ljúka!!!

Sindri er alltaf brattur og vill helst bara flytja í Sandfell til Bensa því að þar er svo gaman að vera!!! Tryggvi bara vinnur og vinnur!!!

Já svona er mitt heimilislíf þessa dagana!!!! Bið bara að heilsa í bili!


» 1 hafa sagt sína skoðun


Myndir
Könnun
Er ekki lífið DÁSAMLEGT???