Kósýland

Velkominn í minn heim

12.07.2007 17:08:35 / kósý

Einmannalegt líf

HÆ!!!!!!

Jæja þá er nú húsið mitt orðið aðeins tómlegt og lífið strax farið að vera einmannalegt!!!! Ég fór með Siggu mína á Akureyri í gær!! Mér fannst voðalega skrítið að vakna í morgun og engin Sigga inn í gestaherbergi til að fíflast eitthvað með mér!!!  En svona er barasta lífið það er ekki endalaust hægt að vera með gesti ekki það að það væri alveg fínt!! Það er alveg spurning hvort að ég gæti bara ekki lýst því einhvern vegin yfir að sigga sé ekki í ástandi til að hugsa um sig sjálfa og engan vegin fær um það að vera að ferðast eitthvað svona af landi brott og mamma hennar getur barasta engan vegin hugsað um hana þannig að hún mundi bara neyðast ril að koma hingað á Kópasker og búa hjá mér eða bara í Tungu!!! Mér finnst þetta mjög gott plan og ég held bara að ég ætti að fara að vinna því að reyna að framkvæma það!!!!!

Já ég held að ég láti þetta gott heita í bili Ingvar er eitthvað farin að pirra sig yfir afskiftaleysi mínu!!! Bið að heilsa!!!


» 6 hafa sagt sína skoðun


Myndir
Könnun
Er ekki lífið DÁSAMLEGT???