já ég var sko tekin!!!! Á föstudaginn var ég send í voða misjó inn á akureyri til að ná í eitthvað strákrassgat sem að átti að koma í sveitina til tengdapabba og ég var búin að bölva eins og versti sjóari yfir þessu öllu saman og mín mætti á flugvöllinn með hundshaus til að taka á móti þessum dreng!! En þá allt í einu birtist Sigga vinkona mín við hliðina á mér!! Ég var ekki alveg að ná þessu og spurði hana hvað hún væri eiginlega að gera þarna!!! Þá höfðu þau Tryggvi verið með þetta plott í gangi og það vissu ALLIR hvað var að fara að gerast nema ljóskan ÉG!!!! En ég var nú samt hin ánægðasta með það að þetta var hún en ekki eitthvað strákgerpi!!!Við skemmtuum okkur bara vel alla helgina og þetta var bara YNDISLEGT í alla staði!!
Núna eru ég og srtákarnirm mínir í Grímsey hjá Hörpu og höfum það bara gott!!Ég fór á spíttara í dag og var næstum búin að gera í buxurnar!!!
Bið að heilsa í bili, ég er að tæknivæðast og er búin að setja inn nokkrar myndir og held áfram þegar ég kem í land!!
Blesss bless og takk fyrir helgina krúttið mitt
» 8 hafa sagt sína skoðun
HÆ!
Já lífið getu verið yndislegt og mér líður svo vel í dag!! En reydar er ég aðeins of hrein samt sem áður en ég vona bara að ég geti farið fljótlega og bætt úr því, orðið skítug og angandi af bestu lykt sem til er!!!! og lyktin er FJÁRHÚSARLYKT!!!! Ég sem sagt fór í sauðburð í nótt og þess vegna líður mér svona vel í dag, ég ELSKA þennan tíma ÉG fór og var með Hörpu í húsunum hjá tengdó! Ég elska að vera svona úti þegar allir eru sofandi og vera í fjárhúsunum skítug upp fyrir haus það er ÆÐI!! Ég tók á móti barnabörnum mínum og það voru tveir myndarlegir hrútar! Ég var komin heim til mín um 5 í morgun og þá fór ég beint í sturtu því ég er ekki vissum að það hefði verið vel liðið ewf að ég hefði lagst svona skítug eins og ég var upp í rúm en ég grét í sturtunni af söknuði við það að þvo ag mér þessa yndislegu lygt, en ég var nú samt glöð í morgun þegar ég fann aðeins keim eftir á höndunum! Ég vona bara að ég komist sem fyrst aftur í minn yndislega skít!!!
Endurnar í húsunum fóru nú alveg á kostum í nótt, það var mikið um hópnauðganir og sá fyrsti var varla búin þegar næsti tók við! Það var nú ein hópnauðgunin sem að byrjaði þegar saklaus andarstúlka ákvað að skella sér í bað þá goppuðu gaurarnir bara á eftir henni bitu hana í hálsin og dróu hana upp úr baðinu öskrandi og gargandi og svo var bara tekið til óspiltra málanna!! Þvílíkur dónaskapur, maður fór nú barasta hálfpartinn hjá sér í öllum þessum látum!! En þær gengu nú alveg fram af mér í eitt skiptið,´þegar þær komu og byrjuðu að éta gumsið úr rollunum þá var mér nú orðið nóg boðið, þvílíkt ógeð!!!!
En já það er annars bara allt gott að frétta hjá okkur. Stefnan er tekin á Akureyri á föstudag með Ingvat til læknis og sjálfsagt verður eitthvað verslað líka!!! Jæja ég bið að heilsa að sinni ble ble!!!!"
» 9 hafa sagt sína skoðun