Jæja hálló ég er sko alls ekki nógu dugleg að skrifa hérna inn
ég veit það!!!
En ég verð bara að fara að láta kíkja á tölvuna mína því að af
einhverjum ástæðum geta ég bara ekki komist inn á til að skrifa
færslu og ekki ef að ég ætla að skoða eitthvað sem að þarf lykilorð
við!! Þetta er örugglega eitthvað voða einfalt og bara eitthbað
stillingar atriði en ég er bara ekkert rosalega mikið
tölvugúrú!!!
En já það er allt gott að frétta af mér og mínum, við brugðum
okkur í borg óttans um daginn því Legó menn voru að spila á hótel
sögu og það gekk bara mjög vel!! Svo fórum við út á lífið eitt
kvöld og ég er ekkert viss um að maður geri það aftru þar sem að
það bara kviknaði í pleisinu sema ð maður var að djamma á!! ég vill
nú ekki hafa fleiri branda skemmtistaði á samviskunni
! En við
skemmtum okkur nú samt ágætlega bara, það þykjast nú sumir ekkert
vita ja eða muna eftir heimferð sinni og ofbeldishneigð sinni en ég
veit nú ekki hverju ég trúi í þeim málum!!! Svo voru nú ýmis
karlanöfn nefnd á nafn á leiðinni heim!!
þannig að ég held nú
að þó svo að þessi manneskja vilji ekkert viðurkenna að þá langi
hana nú að losna við kóngulóavefinn

Já maður er svo á fullu í þessu skóla sem er á vegum Fjallalambs
ég var einmitt að klára lokaverkefnið mitt og senda það í mat!!
Ekki veit ég nú hvort það hafi verið mjög gáfulegt en ég er bara
solt af mér fyrir það að ég skyldi klára og fyrir það að ég er sú
eina sem hefur mætt í ALLA tímana


En já ég er hætt í bili sonur minn er eitthva' farin að
rumska!!! Takk Ómar fyrir að muna eftir deginum mínum í gær, það er
annað heldur en bróðir þinn sem að ættinu kannski frekar að vita
þetta heldur en þú!!!
Jæja bið að heilsa