Kósýland

Velkominn í minn heim

05.12.2007 12:31:49 / kósý

Lítið að gerast

já hæ það er nú ekki mikið um að vera í mínu lífi þessa daganna er farin að vinna allan daginn í fjallalambi og er frekar þreytt eitthvað þegar ég kem heim þannig að það gerist ekki mikið þar á bæ! Það er allt komið á fullt fyrir jólin í Fjallalambi endalaust hangikjöt alla daga. Núna á laugardagskvöldið er stefnan á að vera með mat einhversskonar jólahlaðborð og ætlum við bara að hafa það hérna í Fjallalambi þannig að ég verð væntalega á haus allan laugardaginn í eldamennsku hér í lambinu gaman að því bara, vona bara ap maturinn verði ætur:haha: Kristveig Halla verður betri helmingurinn minn þetta kvöld og það er barasta gaman að því:haha: Svo skildist mér á móður minni að það ætti að drífa í laufabrauðsgerð á sunnudaginn þannig að það er spurning hversu ferskur maður verður í því. Svo á morgun er sterfsdagur á leikskólanum þannig að ég verð bara heima með drengina mína en eftir hádegi er stefnan tekin til Rannveigar í litun veit ekki alveg hvort við náum að klippa það líka þann daginn eða hvort það verður látið bíða til betri tíma. Núna seinasta laugardag var hinn árlegi menningardagur haldin hér á skerinu og var það bara hin ágætis skemmtun. Ég fór með Sindra í klippingu á föstudaginn seinasta og hans heitasta ósk var að fá hanakamb og auðvita leifði ég honum það og hann er bara ótúlegur töffari núna, það tók lengri tíma að greiða honum fyrir menningardaginn heldur en mér:haha: Ég er aðeins farin að dunda mér við það að gera jólakortin en áttaði mig nú á því að ég yrði nú að fara að drífa mig með þau því þessi blessuðu jól eru nú bara rétt handan við hornið!!! Ég t.d veit ekkert hvað ég á að gefa börnunum mínum í jólagjöf, ég er bara alveg tóm fyrir því eitthvað. ég er nú búin að setja upp nokkrar seríur og búið að setja ´seríu á húsið að ósk Sindra Þórs og svo var ég víst búin að lofa því að eftir vinnu í dag skildi ég eitthvað halda áfram

Jæja bjallan er víst búin að hringja þannig að ég verð víst að fara að vinna eitthvað!


» 6 hafa sagt sína skoðun


Myndir
Könnun
Er ekki lífið DÁSAMLEGT???