Já hæ ég er sem sagt að doka eftir þvottavélinni í Fjallalambinu og ákvað því að blogga á meðan svo að ég gæti sett í þurrkarann áður en að ég fer heim því að það er svo mikið sem ég þarf að þvo í vélinni í kvöld. Ég er sko að fara að þrífa eitt stykki hús í kvöld sem að var í notkun í sláturtíðinni og það verur örugglega ekki mjög geðslegt!!!! Já ég nefnilega lennti í því í gær að þurfa að þrífa Fjallalamb eftir slútt og þap var BARA ÓGEÐSLEGT!!!!!
Núna helgina sem var að líða rétt í þessu þá var ég inn á Akureyri í árshátíðsferð með Tryggva og hans vinnu. Það var bara mjög skemmtilegt. Við vorum á Hóteli 2 nætur og það var fariðð í bíó og í leikhús borðað svolítið og drukkið aðeins líka!! Og svo ekki nóg með það þá komst ég nú á sjéns á laugardagskvölið þegar við vorum á Vélsmiðjunni!!! Það var nú frekar fyndið en var nú samt að verða hálf óþægilegt og þá kom pabbi og bjargaði litlu stelpunni sinni
Um daginn fórum við í Grímsey til að vea viðstödd skírn en það varð nú engin skírn bara veisla og nefning!!!! En þar fórum við líka í 30 ára afmæli og var það ansi skemmtilegt góður matur og já ágætis vín bara!!! (ætli ég sé farin að drekka eitthvað mikið
) En allavega var ég svo heppin að ég fékk einn dans og einn koss þetta kvöld og það sem er kannsi merkilegast við það að hvorugt var frá manninum mínum
Það voru hins vega 2 eyjarskeggjar sem að veittu merð þennana unað!
Já nú líður senn að því að ég verði grasekkja í nánast 3 vikur og veit ég nú ekki alveg hvernig það mun ganga, allavega verður allt harðlæst og örugglega dregið fyrir alla glugga! Ingvar Örn er að fara að byrja í aðlögun núna á miðvikudaginn á leikskólanum og svo styttist í 1árs afmælið!!! þetta líður ALLTOR hratt!!! ÞAnnig að þá styttist líka í það að ég fari a' vinna inn í vinnslunni í lambinu!!!
En jæja vélin er örugglega búin þannig að ég bið að heilsa í bili!!!!