Kósýland

Velkominn í minn heim

17.01.2007 17:05:01 / kósý

Daginn....

Komið þið sæl þið sem að eruð að reyna að fylgjast með mér,það hlýtur að ganga mjög illa hjá ykkur þar sem að ég er nú barasta ekkert dugleg við að skrifa hér inn ég játa það alveg en það eru nú astæður fyrir því eins og öllu öðru!! Ég á tölvu en hún er nú ekki góð og þar sem að ég er EKKI þekkt fyrir þolinmæði:evil:  þá er ég nú frekar fljót að gefast upp á henni þegar hún vill ekki gera það fyrir mig sem að ég er að reyna að láta hana gera þannig að þá verð ég bara að fara í þetta mél þegar ég er hjá mömmu eða ömmu og maður er nú kannski ekkert alltaf hangandi í tölvu þegar maður er í heimsókn hjá fólki!:$

En það gengur allt mjög vel hjá okkur á mínu heimili, Ingvar Örn blæs alveg út og er bara mjög vær og góður strákur:haha: Hann er alveg einstaklega þægilegt barn, hann bara drekkur og sefur, hann er reyndar aðeins farin að fjölga þeim stundum sem að hann er vakandi og þá er hann oft bara í vöggunni sinni að spjalla við endur sem aðp hanga þar niður, eða á teppi á gólfinu að skoða leikgrindina sem að Elvar Már gaf honum í jólagjöf.Svo ef að hann er í fanginu á manni þá vill hann helst bara fá að sitja eins og fullorðin manneskja og horfa á sjónvarpið. Mér finnst Sindri nú alls ekkert mjög abbó út í bróðir sinn, mér finnst bera miklu meira á svona ábyrgðartilfinningu hjá honum. Hann er alltaf að passa hann og hugga hann ef að hann fer að gráta og svoleiðis og  þarf alltaf að fá að kyssa hann og knúsa fyrir svefninn og áður en hann fer á leikskólann og oft á kvöldin þá biður hann um að fá að hafa hann hjá sér, og þá liggja þeir saman upp í rúmi og hlusta á tómlist eða einhverja sögu:D En stundum gengur nú ý´mislegt á með hann Sindra það er ekkert illt í garð bróður síns, það eru bara allt í eini orðin svona gestalæti þegar fólk er kannski að skoða Ingvar og svo ef ég farin að finna alls konar listaverk hingað og þanngað um húsið8| en þetta gengur samt bara vel hjá okkur:haha:

Já bæ the vei Gleðilegt ár allir og takk fyrir það gamla! Ég læt þetta gott heita í bili ob bið að heilsa


» 17 hafa sagt sína skoðun


Myndir
Könnun
Er ekki lífið DÁSAMLEGT???