Kósýland

Velkominn í minn heim

21.09.2006 17:15:02 / kósý

Undur og stórmerki.......

......gersast enn skal ég segja ykkur!!! Ég kom heim úr vinnu minni í gær í mesta sakleysi og opna þvottahús hurðina og þar tekur á móti mér hundur frekar asnalegur á svip en það var nú í lagi en það sem að varð til þess að eyru mín og augu stækkuðu um helming var hljóð sem að´ég hélt að heyrðist bara ef að ég væri heima og var farin að halda að eitthvað gruggugt væri á seiði þarna og ákvað nú að stíga út fyrir aftur til að ganga úr skugga um það að ég hefði nú örugglega ekki farið húsavilt en nei þetta reyndist vera rétt hús!!! En þá var bara málið að minn krúttlegi betri helmingur á fullu með ryksuguna!!!!!! Svo er þetta ekki búið en því ég fór svo til að ná í son okkar til ömmu og þar þurfti ég nú aðeins að nærast líka á nýjum snúðum og vínarbrauði og eftir það át þá hélt ég yfir aftur!! Þá hafði þvottahúsið mitt breyst alveg um helming, ég bara þekkti mig ekki þarna inni og var nú aftur farin að pæla í því hvort það gæti verið að ég hefði farið húsavillt, en komst svo að því að það gæti nú ekki verið þar sem að ég kannaðist nú alveg við hlutina sem voru þarna inni, en já áfram hélt ég inn og voru nú hljóðin frá ryksugunni hætt en í staðin var maðurinn komin af stað með skúringargræjurnar!!!!! Ég vissi nú ekki alveg hvernig ég átti að bregðast við þessu öllu en harkaði nú af mér og fór og rak manninum rembingskoss og henti einu faðmlagi með og þakkaði pent fyrir!!!!!    Já þannig að eins og ég sagði hér áður þá geta sko undur og stórmerki gerst!!! Og verð ég bara að segja að ég sé nú bara hin ánægðasta með það!!!!! Þúsund þakkir til míns krúttlega betri helmings!!!

» 10 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 12:29:03 / kósý

skúbídú

Sælt verið fólkið!!

Núna er þessi blessaða sláturtíð gengin í garð með öllu sressinu sem henni fylgir og öllum tungumálunum sem að henni fylgir líka!! Annars eru nú nokkur kunnuleg andlit hér sem að voru´hjá okkur í fyrra líka! En annars er maður nú voðalega lítið inn í þessu öllu þar sem að maður er bara svona pökkunargella og svo þar sem að pökkunin var flutt niður þá er maður nú enþá minna í þessu,en ég hef nú fengið að fara þarna upp sem einkaritari frú Stjönu minnar! Þannig að ég er nú aðeins búin að fá smellinn af þessu!

Annars gengur lífið bara sinn vanagang! Maður er alltaf jafn þreyttur eftir vinnu þannig að það er nú lítið annað gert en bara að henda sér upp í sófa og reyna eftir bestu getu að slappa af! Og bara bíða!!!!! Mér finnst ALLTOF langt þanngað til að ég á að fæða þetta blessaða barn! ég verð örugglega orðin skelfileg þegar loksins að þessu kemur!!!! Annars er svona eiginlega allt tilbúið fyrir barnið! Vagninn er kominn og skiptiborð og hrein föt! Alveg hreint magnað!

Svo er ég bara að bíða og bíða eftir því að það komi mánaðarmót því þá ætlum við mútta mín tvær saman inn á eyri í smá sjæningu og ég get nú barasta ekki beðið eftir því, og ekki veitir nú af að hressa aðeins upp á kellu!

Jæja þá er þetta hádegi víst á enda þannig að það er best að fara að henda upp gribbusvipnum og ná í svipuna og fara inn að stjórnast í þessu liði!


» 2 hafa sagt sína skoðun


Myndir
Könnun
Er ekki lífið DÁSAMLEGT???