Kósýland

Velkominn í minn heim

22.08.2006 15:54:23 / kósý

Úr einu í annað!

Halló hæ!!

Jæja það er nú orðið ansi langt síðan að ég hef komið hér inn og bullað einhverja vitleysu það hafa nú samt srm áður verið gerðar ansi margar tilraunir en það er stundum bara eins og mér sé ekki ætlað að tjá mig hérna inni!! Hmmm kannksi er eitthvað verið að reyna að segja mér að ég sé bara leiðinleg og eigi ekki að vera að þessu bulli hér inni…8| en ég hlusta nú ekki á það ég gefst ekki upp enda aldrei verið sögð annað en þrjóskupúki og ég er nú ekkert að fara að gefa þann titil upp á bátinn!!:klikk:

 En já ég er sem sagt komin aftur til vinnu eftir mánaðar hlé og er nú ekkert alveg að fíla það að vera að vakna svona fyrir allar aldir! Og hvað þá Sindri, honum finnst þetta bara alls EKKI fyndið að ég sé að rífa hann upp á svona ókristilegum tíma!:$ Hann sem að var farin að sofa til allavega svona 10 á morgnana! ;)

En já þetta frí hefur nú samt sem áður ekkert verið eingöngu sældarlíf ó nei. Við erum að brasa í því að skrapa og mála gluggana okkar og það kom í ljós að það þarf að skipta um annan eldhús gluggann, ég var í mínu mesta sakleysi að skrapa þann glugga og þá bara fór hann að molna niður og mér brá nú heldur í brún þannig að ég hætti snögglega!8| Sindri Þór var þarna við hliðin á mér að skrapa hinn gluggann og ég fékk nú aldeils skammirnar yfir mig, hvað væri eiginlega að mér það væri bannað að skemma gluggana svona!! :^)

Óléttan mín gengur bara ágætlega nema bara það að ég bara stækka og stækka…..:^) með þessu áfram haldi þá hætti ég nú að komast inn fyrir dyrnar mínar og verð sjálfsagt að fara að búa um mig út í skúr hjá hundinum og ekki lýst mér nú vel á það svona miðað við útgangin þar sem að hefur verið að mæta manni þegar maður ætlar nú í góðmennsku sinni að gera eitthvað fyrir hundinn! 8|Við erum að tala um það að þetta er engu líkar en það að maður sé bara mættur í fjósin, og lyktin Ó MÆ GOD!!!:whut: Það hefur eitthvað verið að hrjá ræfilinn í maganum upp á síðkastið og þetta er bara eins og kúadella, þannig að maður er nú ekkert sérstaklega hugrakkur þegar maður er að opna hurðina fyrir honum!! :S Úps sorry ég missti mig aðeins út fyrir efnið þarna!!:haha:  En já annars gengur þetta bara svona lal la ég finn það nú samt að ég er nú aðeins að slappast, en ég hef verið í sjúkraþjálfun og er það mikil hjálp allavegana svona þanngað til að ég fæ reikninginn8| En ég fékk nú smá fyrirlestur þar í dag um hreingerningar sem að ég á ekkert að vera að gera,, það er bara eitt sem að ég klikkaði á , ég hefði kannski þurft að fá þetta skriflegt!!:P Sindri Þór hefur mikinn áhuga þessu öllu saman og hann er sko alveg með það á hreinu hvort kynið þetta sé!! Hann segir að þetta sé stelpa og fer ekkert ofan af því. Hann spjallar mikið við bumbuna mína og segist alltaf aðeins þurfa að tala við hana og segja henni systur sinni sögu og hún svara honum víst alltaf! :haha:

Já já þannig er það nú, ég held að þetta sé orðið ágætt af rugli hér í bili og ég kannsi reyni að vera duglegri við það að setjast við tölvuna. En allavega bless í bili! :haha:


» 27 hafa sagt sína skoðun


Myndir
Könnun
Er ekki lífið DÁSAMLEGT???