Kósýland

Velkominn í minn heim

15.07.2006 17:04:09 / kósý

Ferðasaga

HÆ!

Jæja langt er nú síðan ég hef eitthvað verið að tjá mig hér inni þannig að það er kannski komin tími á það að hjá mér!

Ég var að koma úr sumarfríi og var það bara með besta móti!!!;)

Ferðin byrjaði með gistingu  á Dalvík og svo daginn eftir var haldið til Grímseyjar! Ég ákvað nú að fá mér sjóveikispillu svo að ég mundi nú ekki æla alla leið en sú tafla virkaði ekki betur en svo að ég var ælandi í 4 tíma takk fyrir!!!:$ Djöfulsins andskotans viðbjóður sem það var!!!!:evil:  ÉG PANT aldei fara í þetta gula ferlíki aftur!!!!:evil:  Sindri var nú nokkuð brattur alla leiðina en hann ældi 2 þegar við áttum 5mínútur eftir í land! Þannig að hann var nú heldur ekki hrifin af þessu apparati, það var samt aðalega vegan þess og honum fannst ekki nógu gott að ég væri veik og var mjög samúðarfullur í minn garð!!! ;) Sko bara það að skrifa um þessa ferð er að verða til þess að mér sé óglatt þannig að ég held að ég hætti bara að tala um þetta!!!! 8|  En Grímsyjarveran var annars mjög góð bara! Það hefði samt verið allt í lagi að hafa betra veður þessa helgi það var aðeins rigningarsuddi og rok! En svo á mánudeginum þá var alveg dandalablíða! :D Við Sindri flugum til Akureyrar því ég ætlaði ekki að leggja þetta á mig aftur og allra síst á Tryggva ræfilinn!!!:$

En svo þarna á máudagskvöldið lögðum við af stað á Eiðar til að fara í sumarbústað. Þegar við vorum búin að koma okkur fyrir og komin upp í rúm þá leit ég á klikkuna og hún var korter í 3 þannig að þetta tók tíma sinn! Það var alveg æðislegt verðu á leiðinni, himininn var í öllum regnboganslitu!8|;)

Veran á Eiðum var mjög góð, við forum í sund, á árabát, forum á Atlavík, Hallormstað og í Mjóafjörð svo eitthvað sér nefnt!!

Sindri Þór er að  verða þvílíkur sund snillingur!! Hann er með armkúta og svo lætur hann sig bara vaða ofan í laufina og syndir út um allt! Svo var hann að fatta sundgleraugu þannig að hann er alltaf með svoleiðis og bara kafar og kafar!:haha:

Það var oftar en ekki sem að hann kom okkur í vandræði þessa fer!!! Því þarna voru alls konar folk!! Fólk sem var mjög gamalt og hrukkótt og það þurfti nú aðeins að minnast á þá og svo var líka aðeins af fólki sem var í allskonar stærðum og þá meina ég frekar allt of stórum stærðum þannig að það þurfti líka aðeins að nefna það frekar hátt og svona til að leggja áherslu á mál sinn þá var puttinn notaður til að benda á viðkomandi aðaila!!!! :^):^) Þannig að þetta var orðið þannig að ef að það birtist gamalt eða feitt fílk þá var strax farið að tala frekar mikið við Sindra og elst fara með hann eitthvert sem að hann sá þetta gólk bar alls ekki!!!!:haha:  Þetta var frekarvandræðalegt oft!!! En svona eru bara þessi born þau eru svo rosalega hreinskilin!!! :haha:

Svo var náttúrulega mikið af útlendingum og hann var alltaf að spá í það hvað þau töluðu!!! Og var oft komin ofan í fólki því hann var svo mikið að fylgjast með því!

Svo talaði hann ensku mest alla ferðina!! Eða Sindraensku!!!!! Þar þýðir til dæmis Six mon, gerðu það!!! Vissuð þið það???;)

En já þannig er nú ferða saga mín nokkurn vegin!!! Þetta var bara mjög notalegt frí!!! Og núna er það bara að taku upp úr töskum og undirbúa 4 ára afmæli hjá strumpnum mínum sem verður sennilega bara haldi á morgun  því það eru náttúrulega flestir að vinna á mánudaginn sem að er alvoru afmælisdagurinn!!!

En já ég bið bara að heilsa í bili!!!:haha:


» 13 hafa sagt sína skoðun


Myndir
Könnun
Er ekki lífið DÁSAMLEGT???