Hæ!!!
Jæja alltaf lætur maður nú plata sig aftur og aftur!!! Ég er sko
í Fjallalambi að bíða eftir þvottavélinni!!!
EFtir þennan fjölskyldufund um kúlubúann minn þá hefur bumban
mín fengið ansi mikla athygki og ansi mikið dekur!!!! Það er alltaf
verið að skoða hana, strúkja henni, nudda hana og kyssa hana!! En
það er samt tekið skýrt fram að hann,sem er Sindri Þór, sé ekki að
vera góður við mig heldue barnið sitt
!
Ég og Sindri vorum að leika bændur á laugardaginn og vorum að
því frá 9 um morguninn og til 6 seinnipartinn!!! Ég held að ég
hafi sjaldan verið jafn skítug á ævinni!! Ég var með blóð í
andlitinu eftir lömbin, skít á hálsinum og útum alla peysuna mína
eftir að lömbin spóluðu upp mig alla þegar ég var að flytja þau úr
stað pg svo fylgdi alls konar fleiri drulla sem fylgir sauðburði á
mér allri!! Eins og ég segi ég held að ég hafi aldrei verið jafn
skítu og og mér leið ÆÐISLEGA
:haha Þetta var svo yndislegur
dagur þarna í fjárhúsunum, ég var öll endurnærð eftir þetta. Svo
eftir allt brasið í húsunum þá fór ég í heita pottinn í lundi og
það var líka voða gott!!!
Svo um kvöldi var auðvita horft á "júróvísjón" ég var bara
nokkuð sátt með úrslitin nema ég vildi að Danskalagið hefði verið
ofar mér fannst það svo skemmtilegt!
Næstu 2 nætur allavega verð ég barnlaus!!! Það var hringt í
gærkvöldi til að ath hvort það væri hægt að fá að bjóða í barnið
mitt!!!! Þá voru það tengdaforeldrar mínir sem að vildu fá hann í
svona sauðburðarþema
Sindri var voða glaður með þetta allt
sama, en hafði þó smá áhyggjur af mömmu sinni, hann var víst
eitthvað hræddur um að ég mundi sakna hans svo rosalega mikið og
gæti jafnvel farið að skæla!!! En ég reyndi nú bara að bera mig
mannalega og sagði að þetta yrði nú allt í lagi!
Þá ákvað hann að
þetta yrði þá í lagi en lánaði mér samt bangsann sinn áður en að
hann færi ef að ég mundi sakna hans mikið þegar ég væri að
sofa!!!
Hann er bara KRÚTT
En jæja ég held að ég segi þetta bara gott í bili og ég og
bumulíus byðjum bara að heilsa