Kósýland

Velkominn í minn heim

20.02.2006 19:15:52 / kósý

Brjálað lið!

Hæ!

 

 



Jæja hvað er títt!

Á laugardagsmorgunnin var ég rifin upp úr rúminu því það var brjáluð kelling sem að hringdi í mig og vildi endilega að við mundum skella okkur inn á Akureyri og færum á skíði!8|  Já já fólk er náttúrulega bara brjálað!! Þessi brjálæða kelling er tengdamóðir mín! :D  En við hlýddum auðvita hennar skipunum og fórum að taka okkur til í þetta ferðalag! Ég gerðist nú samt ekki svo fræg að fara á skíði enda hafði ég nóg að gera að hlaupa á eftir syni mínu sem var þarna eins og brjálæðingur á snjóþotu og þoturassi! :haha: En þetta var nú samt mjög skemmtilegt! Hann lenti nú í allskonar hremmingum samt sem áður!8|  Hann var skíðaður niður af einhverju klikkuðu skíðabarni,:evil:  klessti á skíðin hjá pabba sínum og brunaði svo afa sinn niður, en honum fannst það reyndar ekkert rosalega leiðilegt!:haha:  Hann rak upp þvílíkann tröllahlátur!:haha::haha:  En já við vorum sem sagt allan daginn upp í fjalli þannig að maður fékk örugglega alveg helling af súrefni! ;) Svo var bara farið að skila græjunum sem að liðið var með í láni svo var haldi í hús sem að tengdaforeldrar Hörpu Þóreyjar eiga og farið að spá í hvað ætti að vera í matinn! Tryggvi var reyndar búin að gefa það út fyrr um daginn að hann yrði ekki í kvöldmat því hann yrði upp á spítala!:haha::haha:  En hann stóð sig nú bara mjög vel! En Greifapizza var fyrir valinu og var hún pöntuð og snædd fyrir framan sjónvarpið sem að sýndi söngvakeppnina! Og svo var bara setið fyrir framan imbann allt kvöldið og langt fram eftir nóttu! Við komum svo hein seinnipartinn í gær og Tryggvi fór svo til Vopnafjarðar í gærkvöldi þannig að maður er orðin grasekkja!:$

Svo var það bara vinnan í dag og svo fótboltaæfing með stelpurnar eftir það, ég reyndar gleymdi því að það væri mánudagur og svo var hringt í mig og spurt hvort ég væri ekki búin að vinna og þá kviknaði ljós í litla kollinum!:haha:

Jæja æeg bið bara að heilsa í bili! ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 16:04:29 / kósý

Bloggleikur

Halló, jæja hann bróðir minn skoraði á mig í einhvern bloggleik þannig að hér kemur það!

 

 



4 störf sem að ég hef unnið um ævina!

Pokkunin í Fjallalmbi, kassadama í Nóatúni, starfsmaður á Sambýli og Essó hjá múttu og far!

 

 



4 bíómyndir sem að ég get horft endalust á!

Pritty woman., Dirty Dancing, sjóræningja myndin með Jhonny Deep og My best friens wedding.

 

 



4 sjónvarpsþættir sem að mér líkar!

Nip tuk, Despret housewifes, FRIENDS, Footballers wifes!

 

 



4 staðir sem að ég hef heimsótt í fríum!

Köben, Mallorca og svo bara fullt af stöðum á íslandi

 

 



4 síður sem að ég skoða daglega

bara allar bloggsíður vina og vandamanna

 

 



4 bækur sem að ég les oft!

Ja þær eru nú mun fleiri en fjórar þar sem að ég les mjög oft Ísfólksbækurna!

 

 



4 einstaklingar sem ég skora á að gera þetta!

Ottó, Magne Dröfn, Stebbi frændi, og Erla Steinþórs

Jæja þá hef ég lokið mínu verki bið bara að heilsa í bili!


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.02.2006 17:15:17 / kósý

Hana nú!

Halló!

 

 



Það virðist eitthvað fara fyrir brjóstið á fólki að ég gefi ekki alltaf upp nöfn á fólki þegar ég er að skrifa á síðuna mína, en það sem að ég geri á minni síðu er bara algjörlega mitt mál! Þannig að þið sem að þolið það ekki það er bara algjörlega ykkar mál! En það er nú bara oft betra að vera ekki að nefna fólk á nafni því það getur oftar en ekki valdið ótrúlega miklum vandræðum og heljarinnar veseni!:evil:  En svo er líka það að ef að ég hef verið að fara eitthvað í kringum hlutina þá er nú yfirleitt ekkert vesen að finna það út um hverja er verið að ræða! Því oftar en ekki nefni ég eitthvað nafn og þá er bara að leggja saman og þá finnur maður nú oft út hverjir þeir eða þær sem ekki eru nefnd á nafn! Þannig er nú bara það “þeink jú verrí næs!”:klikk::klikk::klikk:

 

En annars er nú bara allt gott að frétta af mér og mínum!:haha:  Kallinn minn hann Tryggvi!!!, :haha: hann og bróðir minn hann Elvar!!:haha: , þeir fóru til Reykjavíkur í gærkvöldi og voru komnir þanngað kl & í morgun og tilefnið af þeirri ferð var að ná í eitt stykki móturhjól sem að hann Tryggvi minn bara VARÐ að eignast!8| ;) Já þannig er nú bara það!

Ég er búin að vera með nokkrar fótbolta og körfubolta æfingar fyrir Lundargellurnar og hef nú bara ansi gaman af því! Þetta eru alveg bráðefnilegar stelpur sem eru þar á ferð!:haha:  Og það virðist vera nokkuð sama hvort það er fótboltinn eða karfan þær eru bara jafn góðar í báðu!8|  Það þarf nú svo sem að laga aðeins skapið og tuddann hjá sumum en það er bara hið besta mál! Það er aðalega frænkur mínar, Perla og Eva Bryndís sem eru þar á ferð ég  sagði þeim að þetta væru nú ekki alfarið þeim að kenna því þetta væri ættgengur andskoti.:klikk::klikk: Við erum nú ansi mörg frekar skapstór og það vottar frekar mikið á tuddanum hjá mörgum okkar!! :haha: En svona er þetta bara!

Jæja ég bið að heilsa í bili þarf að rjúka! :P


» 8 hafa sagt sína skoðun

04.02.2006 16:13:10 / kósý

trallalí og hopp og hí

Komið þið sæl og blessuð!!

 

 



Jæja þá er ég komin aftur,hef einhvenvegin ekki haft mikla nennu til að vera að bulla eitthvað hér inn á þessa síðu! En já ég er búin að fara á tvö Þorrablót, annað var hér á skerinu og hitt var í Kelduhverfinu góða. Þau voru bæði mjög skemmtileg en mjög ólík. “Amma og afi” á Hóli buðum mér á blótið í hverfinu en Tryggvi var að spila á Þórshöfn það kvöld. Ég var var bara keyrandi á mínum bíl og var aðeins að því um kvöldið. En það var bara í góðu! “afi” vara samt aðeins miður sín því hann hafði ákveðið að hella niður í mig all nokkrum lítrum af vodka!!! 8| Ég var nú bara feign að ég slap við það því eins og þeir vita sem að þekkja mig þá er ég ekki mikið fyrir svoleiðs stöff!!:$  En ég var farin að óttast að það væri ekki hægt að vera nálægt mér af sökum hákarlsfílu en Harpa Þórey borðaði ekkert minna af hákarli heldur en ég þannig að við gátum bara hangið saman!:haha:

En það var nú öllu verra með blótið hér þar sem að Ella var minn herra og hún er nú ekki ýkja hrifin af hákarli og ég borðaði nú frakar meira af honum á blótini á skerinu!! 8|En hún lét sig þó hafa það að hafa mig illa lyktandi nálægt sér!! Annars var ég nú ansi ánægð að hafa hann Stebba frænda þarna hjá mér þar sem að ég gat gert allskonar prakkarastrik, eins og að henda rusli og drasli í folk!:klikk:  Því þegar það ætlaði svo að fara að hefna sín þá var ég með minn verndara fyrir framan mig, þannig að ég var bara alveg látin vera. :haha:  Þetta var svona fílingur eins og á Laugum því þar var ég látin vera af því að Hróar og Hnikarr voru frændur mínir og vöðvafjallið hann Raggi Skúla vinur minn!!!:haha::haha: Það er BARA gott að eiga góða að!:haha:

Núna eru Legó menn og fylgifiskar út í Grímsey, bara ekki ég!! Þannig að við Sindri erum bara hér heima. Systir mín fékk að gista hjá okkur í nótt og það var frekar lítið pláss fyrir mig í mínu rúmi!! Það voru bara lappir og hendur út um allt á mér! ;)Og núna er ég að fara í það að mála bílskúrsgólfið mitt þannig að ég bið að heilsa í bili!:haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun


Myndir
Könnun
Er ekki lífið DÁSAMLEGT???