Kósýland

Velkominn í minn heim

14.12.2006 17:38:23 / kósý

bla bla

Takk fyrir allar hamingjuóskirnar;) Þessi hugmynd um nafnið Eiríkr Fjalar var nú ansi góð, verst að mér skildi ekki hafa dottið það í hug:S En ég man það ef að ég kem með annar;) Annars var ég nú ansi hrædd um að ég mundi segja vitlaust nafn við Prestinn þegar hann mundi spurja mig hvað barnið ætti að heita, hmm já hann á að heita Skefill Hnefill8| ég er ansi hrædd um að það hefði orðið ansi skrítinn svipur á fólkinu í kirkjunni þá:D Ég nefnilega sagði öllum að hann ætti að heita þetta sem að spurðu mig þetta eða Bólu Hjálmar af því að hann fékk svo agalegar hormónagólur:$

En já það er allt gott að frétta af okkur öllum, hann Ingvar Örn blæs alveg út enda gerir hann lítið annað en að drekka:haha: En við fórum í skoðun um daginn og þá var hann orðin 60 cm og 6,2 kíló:haha: Þannig að ég held barasta að það sé nú ekki hægt að segja að honum skorti mat:haha:

Jólasveinarnir eru farnir að týnast til byggða eins og þið vitið og vekur það mikla kátínu á mínu heimili bæði hjá mér og Sindra:haha: Hjá Sindra er tilhlökkun að vakna og sjá hvað sveinki hefur sett í skóinn og hjá mér gleði yfir því að í nokkra daga verður maturinn kláraður af disknum, gengið verður frá dótinu sem að er um allt hús án þess að vera með vesen, og það er farið að sofa í sínu rúmi án mikilla vandræða:haha: Verst að þessir kallar séu ekki aðeins fleiri;)

Jæja ég held að ég segji þetta bara gott í bili, þarf að fara að sjá um börnin bið að heilsa og vonandi kemst ég eitthvað í það fljótlega að koma myndum hér inn


» 8 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 15:34:32 / kósý

Það lifir!!

Hæ, bara rétt að láta vita af því að ég er á lífi er bara í brjáluðum undirbúningi fyrir skírn sem er á laugardaginn og er líka að reyna að undirbúa þessi blessuðu jól! Ég ætla ekkert að gera eins og Ella að koma með stafina sem eiga að vera í nafninu en ég get sagt ykkur að nöfnin verða tvö, fyrra nafnið með 6 stöfum og seinna nafnið með 3 stöfum meira verður ekki gefið upp:haha:

Það gengur allt vel hjá okkur, sá litli er samt eitthvað í því að flýta sér að stækka þessa dagana og er bara drekkandi allan daginn8| ég hef grun um að hann hafi frétt það að hann yrði skírður á laugardaginn og vilji alls ekki vera smábarn á þeim degi!

En já ég segi bara bless í bili verða að halda áfram að laga til:evil:


» 16 hafa sagt sína skoðun


Myndir
Könnun
Er ekki lífið DÁSAMLEGT???