Kósýland

Velkominn í minn heim

18.11.2006 18:22:18 / kósý

takk fyrir takk

Hæ hæ!!!

Jæja  ég  þakka bara fyrir allar hamingjuóskirnar sem eru hér fyrir neðan seinasta blogg:haha:.  Litli prinsinn minn var bara góður við mömmu sína og var ekkert að láta bíða neitt eftir sér, sem var bara hið bestasta mál;) Annars var þetta nú samt ósköp fyndið að þetta skildi gerast akkúrat á réttum degi og þar sem að við vorum líka inn á Akureyri. Við fórum inn á Akureyri til að fara með Sindra Þór til Hörpu því hann ætlaði að vera í Grímsey þanngað til barnið mundi fæðast. Það var nú ekki flogið þennan sunnudag þannig að við ákváðum að vera lengur því við vildum fá að fylgja honum upp í flugvél og svona;) Við fórum svo saman í bíó og sáum Mýrina sem var bara hin ágætasta mynd og ég var nú eitthvað búin að finna fyrir seiðingum en tók þá nú ekkert alltof alvarlega:$ En svo var nú Tryggvi alltaf að benda mér á það að við værum nú úr svietinni og það væri nú ágætt ef að ég mundi kreista úr mér krakkanum svona til að nýta ferðina:haha: Og þar sem að ég hef nú alltaf verið frekar hlýðin ung dama þá náttúrulega bara nýtti ég ferðina og átti prinsinn minn:haha: Ég var reundar líka búin að lofa Tryggva því að eiga á virkum degi en ekki um helgi því að hann er var svo mikið að spila um helgar þarna og er reyndar enn að því!

En já drengurinn minn semsagt fæddist 30. okt og var 17 merkur og 55 cm! Þannog að hann var nú minni er bróðir sinn en Sindri var 18 og 56cm!! Enda sagði ég að ef að æeg mundi eiga eitt barn en þá hlyti það að verða 16 og 54:P Fæðingin gekk ágætleg var reyndar alla nóttina með verki og svona og hann kom nú ekki fyrr en eftir hádegi eða kl 12:14!! En þegar að hann var búin að snúa sér rétt þá spýttist hann bara út:haha: Og þegar mér var sagt að þetta væri strákur þá varð ég barasta ekkert hissa;) Mamma og Tryggvi voru þarna með mér og voru þau bar mjög svo góður stuðningur!

Við vorum frekar lengi upp á fæðingadeild eða í viku og ég var algjörlega að TAPA mér þarna inni!:evil: En ég fékk nú að fara 2x út að borða, einu sinni með mömmu og THS og svo bara með Tryggva mínum!  ég var rosalega glöð að komast loksins út af þessum spítala og heim til mín:haha:

En já okkur gengur bara mjög vel  og erum bara mjög sátt við hvort annað:haha: Sindri tekur þessu bara vel, hann er búin að jafna sig á því að það hafi ekki komið stelpa:P Og litli prinsinn er bara mjög vær og góður, ég held að ég segji bara bless í bili og bið bara að heilsa


» 7 hafa sagt sína skoðun


Myndir
Könnun
Er ekki lífið DÁSAMLEGT???