Kósýland

Velkominn í minn heim

25.10.2006 15:46:58 / kósý

Bið og aftur bið

Já hæ hæ og halló!

Já ég er sem sagt bara heima við og að doka eftir því að þetta barn farið að láta sjá sig! Ég er nú samt ekki skrifuð fyrr en á mánudaginn en mér findist nú bara allt í lagi ef að þetta kríli færi að láta sjá sig!! Það er líka orðið  svo stórt og ég vil ekkert þurfa að fæða mikið stærra barn!! Sindri Þór er að huga að því að bregða undir sig betri fætinum og fara af landi brott!!!8| En það stendur til að hann fari til Grímseyjar til að vera hjá guðmömmu sinni!!!;) Þetta verður í fyrsta skiptið sem að hann fer svona langt í burtu frá okkur því það er nú ekkert auðvelt að skreppa bar og ná í hann út í Grímsey!!! En hann er voða spenntur og spurði mig hvort að ég ætti stóra tösku til að lána honum því að hann ætti bara litla!:haha: En já það er aðeins verið að spá í það að hann fari þarna út í eyju á sunnudaginn þannig að maður verður sjálfsagt eitthvað vængbrotinn þá!!:(

Ég var eitthvað að velta því fyrir mér að fara inneftir til að doka þar eftir þessu barni en ég held að það sé bara vesen! Ég þarf þá að finna mér eitthvað fórnalamb til að búa hjá og það er örugglega ekki einfalt! Svo líka þá er komið vesen með það hvað áð gera við Remma ræfilinn því Tryggvi er alltaf í vinnunni og svo held ég að Tryggvi mundi bara fá taugaáfall og hjartaáfall og bara allskonar áföll ef að ég væri inn á eyri, Sindri í Grímsey og hann þarna heima það mundi örugglega enda með spítaladvöl!!! Þannig að ég verð örugglega bara heima!! Ekki það að ég held ég þurfi ekki að bíða eins lengi eftir þessu barni og Sindra (7,9,13):haha:

En já ég held að ég láti þetta bara gott heita í bili og ég bið bara að heilsa!


» 31 hafa sagt sína skoðun

14.10.2006 18:18:23 / kósý

En þá skemmtilegra að vera til!

Jæja í dag er miklu skemmtilegra að vera til heldur en að það var í gær!!!! Húsinu mínu var breytt í heimili í gær!!!:D Það var ekki orðið mjög fallegt skal ég segja ykkur:evil:,  Tryggvi hefur nefnilega ekkert komið snemma heim úr vinnunni síðan þarna seinast þannig að húsið var orðið ja, það er eiginleg of fallegt að segja að það hafi verið ógeðsleg því það var svo miklu meira en það ég hef barasta engin oð til að lýsa því hvernig það var orðið!!!8|  En allavega það var sko ALDEILIS bætt úr því í gær!!!:D Ég fékk tvær konur í heimsókn í gær og það var bara rokið í það að gera þennan viðbjóð að heimili aftur og mér líður SVO vel þarna inni núna!!!:haha: En þessar tvær dásemda konur voru sem sagt móðir mín og tengdamóðir mín!!! Og það er búið að setja upp vögguna og skiptiborðið, fötin eru hrein inn í skáp, tryllitækið mitt (vagninn) bíður í þvottahúsinu!!! Þannig að þetta er barasta allt reddí!

Já og svo er það slútt í kvöl, ég var nú í Fjallalambi í dag að gera fínt fyrir kvöldið sem að ég verð kannski svona 5 mínútur á því að ég á örygglega eftir að sofna þarna fram á borðið! Svo er nú líka búið að bjóða manni í fyrirpartý og svona þannig að ég verð nú að reyna að taka á honum stóra mínum og verða djammgella í kvöld8) ég get bara sofið á morgun, já ég verð bara að fara og finna gamla djammgírinn  og smyrja hann aðeins upp og bara taka á þessu:haha:

Svo fékk ég nú heimsókn áðan og var voða ánægð með það!! Védís mín kíkti á mig bara svona til að lífgatilveruna og það var bara gaman af því!!!! Annars fékk ég nú heimsókn í gær líka sem að ég vil nú meina að hafi nú barasta verið mjög dónaleg heimsókn, því manneskjan sem að kom sagðist bara vera að koma til að káfa á mér því að það hafi verið svo langt síðan hún hafði komið til mín til að káfa á mér!!! Mér finnst þetta nú bara vera hin argast dónaskapur og svo er nú ekki nóg með það að þessi manneskja hafi verið kona heldur var þetta líka frænka mín!!!!!!

En jæja ég bið að heilsa er farin að reyna að snyrta mig eitthvað til!!!


» 12 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 09:23:20 / kósý

Svo Gaman að vera til!!!!

Hæ!!!

Já í dag finnst mér mjög gaman að vera til.:haha: Því í dag er seinasti vinnudagurinn minn í lambinu í HEILT ÁR!!! :haha::haha::haha: og það er BARA góð tilfinning8)

Annars er bara allt fínt að frétta ég er nú samt orðin ansi þreytt enda orðin ANSI feitt!!;)

Já það er slútt á morgun og ætli ég neyðist nú ekki til að láta sjá mig þar því að ég er í þessari blessaðri stjórn! En það verður bara að koma í ljós hvað ég endist lengi þarna!!! Það er spurning hvort að ég verði á undan einhverri fyllibittunni að sofna fram á borðið:haha:

Jæja bið að heilsa í bili þarf að fara aftur að vinna!!! svona í síðasra sinn:haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun


Myndir
Könnun
Er ekki lífið DÁSAMLEGT???