Halló!! Jæja ég er komin aftur eftir smá hlé!!
Ég er búin að vera heima í viku með Sindra Þór veikann!! Rosalega gaman eða þannig!! Hann var með barkabólgu og það var ekki gaman hvorki fyrir hann né mig!! Ég var að verða svona nett geðveik á því að hanga heima!! Og ótrúlegt en satt þá hlakkaði mig bara til að fara í vinnuna í morgun!!!
Jæja þá er Þorrablótsvertíðin að ganga í garð,, það verður smá spilerí hjá kallinum mínum og hann verður td ekki með mér á Þorrablótinu hér þannig að ég fer bara makalaus!!! En það er svo sem í lagi ég er búin að finna mér aðrar makalausar gellur til að fara með! Ja allavega er ein makalus það er ekki alveg vitað með hina!! Hún á jafnvel tvo menn, einn lítinn og einn stórann!!! Það gæti nú verið gott fyrir hana!! Haha þetta er að verða ansi gáfulegt hjá mér ,en svona vill þetta verða þegar maður er að tala um gáfulegt fólk!
Já já annars er nú ekki mikið að frétta ætlaði bara að láta vita að ég væri á lífi!!! Jæja bið að heilsa ykkur í bili dúllur!!
» 11 hafa sagt sína skoðun
Jæja þá er loksins komið nýtt ár!! Það er spurning hvað þetta ár ber í skauti sér!!!
Ég mætti í Skúlagarð á föstudagskvöldið og það var bara mjög fínt. Ég gat haft gaman af fullt af fólki sem að var þarna alveg upp á sitt besta!!! Ég var bara góða stelpan og drakk jólaöl og vatn! Ég ákvað að vera svo góð í mér að bjóða mig fram sem bílstjóra fyrir litla krúttið hann bróður minn!!! Ég dansaði alveg heil ósköp og var það oft ansi slæmt þar sem að ég átti í vandræðum með buxurnar sem að ég var í og voru þær oft nánast dansaðar niðrum mig! ! Sem sagt ekki gott að vera í þessum buxum beltislausum í snúningadönsum!!! ! Man það bara næst!!! Margir voru þarna ansi drukknir og urðu sjálfum sér hreinlega til mikillar SKAMMAR!!!! En það eru víst alltaf nokkrir sem að þurfa að haga sér svoleiðis!! Það verður einhver að vera leiðinlegur! Þannig virkar þetta bara! En þatta var samt sem áður hið skemmtilegasta kvöld, finns samt verst að hafa mist af árásinni á hana Ernu mína!!! Það hefði verið fyndin sjón. Líka þar sem þessi árásarmaður var ansi virkur í því að ráðast á ALLS konar fólk út um allan sal!!!!
Ég náði nú samt sem áður að lenda í smá rifrildi þarna og það var við kærastann hennar Hörpu, hann vildi bara fá að eiga son minn og ég var nú ekki alveg á því!! En hann var ekkert á því að gefa sig og reifst um þetta allt kvöldið við mig!! ! En hann var líka mjög duglegur í því að reyna að kenna mér að dansa!! Hann og Harpa eru nefnilega búin að vera í danskennslu út í Grímsey og hann var að reyna að miðla reynsli sinni til mín, það gekk svona upp og ofan en við vorum orðin ansi góð þarna í restina!
Gammlársdagur fór nú ekki í mikið annað en að laga til og þrífa. Svo var rokið í að þrífa sig og aðra og svo í mat til mömmu og pabba. Þar fékk ég rjúpnasúpu og hreindýrakjöt!!! NAMMINAMM! Eftir matinn var svo haldið á brennuna og svo heim aftur og beðið eftir skaupinu. Mér fannst þetta bara alveg ágætt skaup það allavega hefur oft verið verra!! Mér fannst Björgvin Franz algjör snilld!!!! Eftir skaupið var svo bara farið að hafa sig í það að græja sig út að skjóta upp!!! Ég man nú ekki hvað klukkan var þegar við forum heim en þegar Sindri var farina ð sofa var bara lagst upp í sitthvorn sófann og glápt á sjónvarpið eitthvað fram eftir!!!
Jæja ég bið að heilsa í bili!
» 7 hafa sagt sína skoðun