Jæja sælt
verið fólkið!!!
Afsakið,afsakið
fyrir það hvað ég hef verið léleg í blogginu!! Ég er búin að vera á
leiðinni í marga marga daga hérna til mömmu svo að ég geti
bloggað!! Var komin með pistil í kollinn sem að ég ætlaði að skrifa
eftir Akureyrarferðina, en hann er bara dottinn út, þannig að ég
verð að finna upp á einhverju nýju!!
En já ég fór sem
sagt inn á Akureyri seinasta laugardag á Ávaxtakörfuna! Þetta var
rosalega skemmtileg sýning, við mamma höfðum alveg jafn gaman af
henni og krakkarnir!
Það var rosalega skemmtilegt að
fylgjast með þeim. Sindri Þór var alveg bíó! Hann lifði sig svo inn
í þetaa að það var alveg dásamlegt!! Ef að einhver var sorgmæddur í
leikritinu þá sat hann með skeifu, og ef einhver var glaður þá sat
hann og brosti!
En annars voru þau ALGJÖRLEGA stjörf!!
Eftir sýninguna
var haldið á Glerártorgið til að versla. Ég eyddu nú engum óþarfa
þar!! Bara keypti það sem að mig vantaði!! Svo fórum við aðeins í
Haggarann, þar verslaði ég mér gallabuxur og belti!! Enda kominn
tími til, mínar gallabuxur eru bara búnar!!!
Eftir
verslunarleiangurinn þá var ferðinni haldið á Greifann til að troða
í vömbina!! Eftir það var ferðinni bara haldið heim!
Á sunnudagsmorgun
fórum við í Tungurétt, bara svona til að skoða fólkið og
kindurnar!! Svo var ferðinni að sjálfsögdu haldið í Lundinn góða
til að nærast!
Vikan hefur ekki
verið neitt merkileg, bara vakna, vinna, borða, horfa á sjónvarpið
og svo sofa aftur! En samt all ekkert svo slæm!!
Í gærkvöldi fékk
ég nokkra gesti, það voru minn áskæri bróðir, Mitt ástkæra viðhald,
Lára Dagný og Ómar. Við sátum bara heima í góðum filing að spjalla,
sötra og hlusta á Cat Stevens!! Ferðinni var svo heitið á
Gistiheimilið í eitthvaðpartý með FULLT af einhverjum svía börnum!!
Ég stoppaði nú ekki svo lengi, ég hafði barnapíu til 2! Og það var
bara gott því þá gat ég bara farið snemma heim án þess að ég væri
ásökuð fyrir að vera félagskítur!!!
Ég hafði löggilda
afsökun!!
Dagurinn í dag
átti að fara í það að hlaupa á eftir einhvejum kindum í
Skinnastaðahöfðanum en ég veit ekki hvort að það verður eitthvað úr
því, það er víst grenjandi rigning þarna niður frá! En það verður
bara að koma í ljós. Ég sem var alveg komin í hlaupagírinn og mér
var meira að segja farið að hlakka til ótrúlegt en satt!!!
Því miður er ég
ekki með neinar krassandi sögur af srákunum mínum í þetta skiptið
handa þér Ottó minn, en ég er að safna sögum sem að ég get skrifað
hérna fyrir þig!!!
Jæja ég held að ég
sé bara hætt í bili, takk æðislega og bæ!!!