Hæ fólk!
Jæja maður er nú
ekkert alltaf að standa sig rosalega vel með þessa blogg síðu, en
ég reyni að gara mitt besta!!
Dagurinn í
dag var nú alveg ágætur bara, var reyndar voða löt eitthvað!!
En ég gerði samt helling! En kannski getur maður alltaf gert
meira! En ég var allavega ekki svona pirruð í dag eins og í
gær!
Ég veit nú reyndar ekki ástæðuna fyrir þessum
pirring mínum í gær, kannski var þetta bara svona mánudagspirringur
eða eitthvað! Ég varaði Ágúst og Reynir við því að ef að þeir mundu
allt í einu finna svona óútskýranlegar slettur allt í einu á sér,
þá væri það bara ég að springa úr geðvonsku!!
En það gerðist nú
sem betur fer ekki og ég er hér í dag!! Hvort sem ykkur líkar það
betur eða verr!!!!
Einar Garðar kom í
gær til að skoða húsið hjá okkur og ég held að honum hafi bara
litist vel á það og ætlaði að heyra í Halldóri Þór í dag!! Vonandi
gengur það bara allt fínt! Það væri aðeins tilbreyting í því ef að
eitthvað gengi upp hjá mér þessa dagana!! Það væri allavega svona
öðruvísi!!
Ég hitt Ólöfu
Magnús þegar hún var hérna um helgina, hún var bara nokkuð
brött,allavega svona miðað við aðstæður! En það var gaman að sjá
hana eins og alltaf!
Um helgina er
stefnan tekin inn á Akureyri með mömmu, Ernu Rún og Sindara
Þór. Við erum að fara á Ávaxtakörfuna!! Bara gaman af því! Ég held
bara að það verði fínt! Tryggvi verur í göngum um helgina, þannig
að við Sindri verðum bara ein heima frá fimmtudegi.
Já svo er
sláturtíðin að fara að byrja og allt í lagi með það, en ég sé ekki
mikið gleðitímabil þar framundan eftir vissar fréttir sem að ég
fékk!!!
Og SUMIR hlóu bara af áhyggjum mínum gagnvart
þessu tímabili!!
Svona fólk sko!!!

Jæja best að
hætta þessu blaðri, bið að heilsa!