Halló gott
fólk!!!
Já það er nú ansi
langt síðan ég hef skrifað hér, þó svo að það sé margt sem að ég
gæti deilt með ykkur! En ég gerði tilraun hérna tila að skrifa
þegar ég kom að utan og ætlaði nú aldeilis að segja ykkur frá
þessari skemmtilegu ferð en nei nei tækni og ég fórum EKKI saman
þann daginn og það var alveg sama hvað ég gerði það bara virkaði
ekki neitt!!
Ég var búin að skrifa þennan rosa langa pistil
en hann vildi bara EKKI fara inn á síðuna mina alveg sama hvað ég
reyndi og öskraði og blótaði!!
Þannig að ég bara gafst upp og
fór í mikla fílu þar sem að ég hafði látið í minni hlutann fyrir
einhverri tölvutík!!!
Það var ekki gott fyrir
sálartetrið í mér þannig að ég hef ekki fengið mig til að líta á
þessa tölvu í ansi marga daga.
En svo lenti
ég að tilviljun hérna heim til mömmu og pabba, ja kannski ekki
alveg af tilviljun, ég þurfti að koma hérí ránsferð svo að ég gæti
haldið baksteinum mínum áfram! Já gott fólk ÉG ER AÐ BAKA!!!8 En ég
get sko alveg sagt ykkur það að það eru sko bökuð miklu meiri
vandræði heldur en að ég hefði viljað!!! En þannig fer nú
bara fyrir þeim sem leggja sig ekki mjög vel fram við það að vera
fyrirmyndahúsmæður!! Ég er sek SVO sek!!!!
En já
utanlandsferðin mím var rosalega skemmtileg, við gerðum mikið af
skemmtilegum hlutum sem að ég ætla ekki að vera að þreyta ykkur með
því ég hef örugglega meira gaman af þeirri frásögn heldur en þið.
En allavega var þetta bara mjög vel heppnað allt saman, það var
reyndar aðeins of heitt oft á tíðum hefði verið í lagi að það hefði
annað slagið verið nokkrum gráðum minna!!!
En jæja ég læt
þetta gott heita í bili og fer heim á leið að halda áfram að baka
vandræðin mín!