Jæja halló
allir saman!
Það hefur svo sem
ekki mikið gerst hjá mér síoðan ég ritaði hér seinast (nema kannski
bara hlutir sem að maður ræðir ekki á svona síðum!!) Ekki satt
Erna!!! Ha ha bara smá einkahúmor hérna SORRY!!! 
Ég er núna hjá
henni múttu minni sem var að enda við það að snyrta hárið mitt og
klippa son minn! Það er magnað að eiga svona múttu sem kann að nota
skæri!!!
Það minnkar aðeins álagið á veskinu! Reynar á
ég líka tengdamúttu
sem að kann líka á skæri þannig að þetta er tvöföld heppni hjá
mínum!! Það er stundum gott að vera ég!!
Þótt ótrúlegt megi
virðast!
En við
skulum ekki vera að fara neitt út í þá sálma!!!
Já ég segi alveg
allt þetta, það er alveg með ólíkindum hvað ég verð oft algjörlega
tóm í hausnum eftir að ég er búin að vera hérna inni í smá stund
(en það er kannski ekki við öðru að búast af ljóskunni
mér!) 
En ég er ansi
bjartsýn með fótbolta sumar hjá okkur gellunum mér hefur heyrst að
það vilji ansi margar vera með! Sem er náttúrulega bara MAGNAÐ!!
Við erum líka lang bestar og LANG FLOTTUST fótbolta gellurnar!!!
Já ég segi það satt það finnast ekki margar sem eru eins magnaðar
og við!! (ég held að eitthvað egó flip sé að stíga mér til höfuðs
hérna) En það er nú bara allt í lagi það er nú eeki oft sem að
maður fær svona egó flip! Svo lítur þetta nú aðeins betur út þar
sem að ég er ekki bara að lofsyngja sjálfa mig heldur HEILDINA!!!
Já já þannig á þetta að vera ein fyrir allar og allar fyrir
eina!! Er það ekki annars ??!! Það held ég barista! Ég held að
þetta sé allt komið í eitthvað fokk hérna hjá mér þannig að kannski
er bara best að fara að loka fyrir flæðið sem að myndaðis allt í
einu í kollinum á mér!!
Annars er það að
frétta að ég er búin að vera að leika bónda annað slagið á
Skinnastað hjá tengdapabba og ég er alveg að fíla þetta í botn!! Ég
var búin að gleyma hvað mér finnst þetta notalegt og gaman! Samt er
ekkert eins og að vaka yfir fénu, vera aleinn og heyra ekkert nema
jarm og fuglasöng (og svo annað slagið það sem að fer í gegnum
kollinn) Ég era ð hugsa um að gerast bóndi þegar ég er stór (þar að
segja ef að sá atburður gerist einhvern tíman!!) Á morgun þarf ég
að vera bústjóti því þau þurfa að bregða sér af bæ í einhverja fína
fermingarveislu!! Þá fer Kristín litla í skítagallann sinn og fílar
það í tætlur!!

Svo er annað
tilhlökkunar efni um helgina, eða ég vona að það gerist núna.
Þannig er nefnilega mál með vexti að hún Erna mín gaf mér Dirty
Dancing á DVD í afmælisgjöf, það er sko BESTASTA BESTA
afmælisgjöfin mín því ég hef leytað að þessari mynd lengi!!!
Það stendur semsagt til að fara í Dirty Dancing maraþon, taka
mynd nr 2 líka svo er aðal málið, það er nefnilega svona bonus efni
á disknum mínum og það er learn to Dirty
dancing!!!
Magnaður skítur!
Ég get bara ekki beðið!!
Jæja nú ætla ég að
hætta þessu bulli áður en að ég verð mér til skammar, en það
kannski er löngu skeð!! SO be it!!
Bless dúllur!