Kósýland

Velkominn í minn heim

26.04.2005 17:09:23 / kósý

Smá yfirferð

jæja sælt verið fólkið!

 Í dag og í gær var ég í vinnu í lambinu góða!! Þannig er mál með vexti að Ella og Finn eru í fríi og þá var kallað í Kristínu litlu!! Það er líka svolítið mikið að gera í þessari viki vegna íslenskra daga í Fjarðarkaup! Í dag var ég að pakka svo girnilegu kjöti að ég var með vatn  í munninum í ALLAN dag!! Ekki er það gott. Ég og Kristjana vorum saman í að pakka þesasu girnilega kjöti sem að fylgir ansi mikill subbuskapur eins og sýndi sig glögglega á mér ( það var allavega ekki hægt að segja að ég hafi ekki unnið neitt í dag!!) Ég var orðin frekar ógeðsleg þegar vinnudeginum var lokið. Ég klikkaði nefnilega á því að setja á mig svuntu og sá svo ekki tilganginn í því þegar ég leit niður á skyrtuna mína!! Ég er SUBBA dauðans!!!

Föstudagurinn minn var nú ekki merkilegur. Tryggvi,Elvar og Siggi stungu af til Grímseyjar því feðgarnir áttu að spila þar um kvöldið. Dagurinn hjá mér fór mest megnis í það að reyna að hafa mig í þrif á húsinu mínu eð það gékk mjög illa því að ég gat ekki haldist inni, það var svo gitt veður, en svo hafði ég mig loksins í það því ég rak augun í auglýsingu hjá hitaveitunni sem hótaði því að taka heita vatnið af um 11 á föstudagskvöld þaðnnig að ég varð að drífa þetta af! En þegar ég var loksins komin í gírinn þá vantaði syni mínum allt í einu óskaplega athygli þannig að ég hringdi í Perlu bjargvætt og hún fór með hann í göngutúr. Um kvöldið sat ég bara í eymd minni að bíða eftir Ernu og las Ísfólkið, en Erna og Hrafnhildur komu seint og síðar meir og stöppuðu í smá stund.

Laugardagurinn, sem sagt afmælisdagurinn minn byrjaði bara ágætlega eða með afmælissöngnum frá syni mínum!!!;) Það fannst mér ansi sætt!! Svo vorum við bara að horfa á barnatímann og þá var bankað og þar stóðu aðrir söngfuglar sem að voru þau Haffi og Anka. ;)Þau voru hjá okkur Sindra í hádeginu. Dagurinn fór nú í lítið annað en bara eitthvað að dandalast fram og til baka þar sem að nánast allir mínir fjölskyldu meðlimir þurftu endilega að yfirgefa mig. Ég fékk eina afmælisgjöf  þennan dag og það var frá Perlu og það var svon tré kelling sem að verður sko flott á eldhúsveggnum!  Svo fór ég með Sindra seinnipartinn til Ömmu Ósk svo að ég gæti farið að græja mig fyrir kvöldið.

En já ballið í Skúlagarði var ansi fínt bara! Það var reyndar mjög slöpp mæting, eiginlega bara SKAMMARLEGA LÉLEG MÆTING!!!!! :^)  :klikk:  En þeir sem að mættu virtust skemmta sér mjög vel.:P  Þetta var meira svona eins og stórt partý með lifandi tónlist!! En mér fannst þetta fínt og alveg magnað framtak hjá Gunnari og Önnu. Þau eiga heiður skilið fyrir þetta!:haha:  Milla söng með strákunum og það var alveg magnað!! Gífurleg söngkona þar á ferð!!:haha:  Það voru veitt verlaun fyrir besta búningin og hjá köllunum var það Alli kennari sem að bar sigur úr bítum og hjá kvennþjóðinni var það Anka.

Á sunnudeginum fékk ég fullt af gjöfum. Tryggvi hafði keypt eldhúsborð og stóla!!! Það er allt annað að sjá eldhúsið mitt núna. Svo fégg ég frá mömmu og co!! Ég fékk hálsmen, armband, eyrnalokka, kerti og skál fyrir kertið!!!! Heppin ég;)

Jæja ég held að þetta sé orðið gott hjá mér bið bara að heilsa!


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.04.2005 17:59:56 / kósý

Kallar geta verið sætir í sér!! (ótrúlegt EN satt)

Jæja góðan og blessaðann daginn og GLEÐILEGT SUMAR!!!!

Eins og heiti færslunar gefur til kynna þá  var kallinn minn ansi sætur í sér í gær!! Þannig er mál með vexti eins og ég sagði í seinustu fæslu þá verður hann ekki heima á afmælinu mínu, hann fer í Grímsey í fyrramálið og kemur heim á laugardag og fer þá beint í það að græja ball í skúlagarði og verður þar að spila um kvöldi þannig að hann getur lítið sinnt sinni heitt elskuðu! Þannig að í gær reddaði hann pössun fyrir Sindra stubb og fór með mig inn á Húsavík, fyrst var ferðinni heitið á Sölku og eftir ótrúlega góðan mat fórum við á leiktitið Sambýlingarnir. Þetta var alveg ótrúlega skemmtilegt leikrit, ég hló alveg ótrúlega mikið af þessu!! Það var algjör snilld hvað þetta fólk náði vel að leika svona fólk! Hrein snilld alveg!!! Svo fórum við í Hól til "ömmu og afa" því þar var Sindri og við gistum þar. Ég varð nú ansi stollt móðir þegar ég kom þanngað! Þau hrósuðu honum svo mikið, þetta væei alveg yndislegur drengur og svo dásamlegt að hafa hann og svo líka að hann væri svo vel uppalinn!!!!:haha: Ég viðurkenni það að þarna fór móður stoltið alveg á flug!!;) ÉG ER BEST!!!:haha:

Já já þannig er nú það! Ég veit ekki alveg enþá hvað ég á að gera mér til bölvunar á morgun fyrst að ég verð ein heima, en ætli dagurinn byrji ekki á því að fara með prinsinn minn á leikskóla og svo að laga til og þrífa þetta fokkings hús mitt.Ég er eigilega farin að sjá eftir því að hafa gefið Tryggva svartann hund í afmælisgjöf í fyrra, það er görsamlega allt út í svortum hárum heima hjá mér!! Og svo bætir það nú ekki að hafa gólfið svona ljóst því þá sést þetta enþá meira. Maður þarf alltaf að vera með helvítis ryksuguna á lofti!! Og það er sko EKKI fyrir mig!!! Ég er ekkialveg þessi típikal húmóðurstýpa!!! Ég játa það!!! En það fólk sem að sá herbergið mitt á yngri árum ættu ekkert að verða hissa yfir því:^) :$

Jæja ég segi þetta gorr í bili og bið að heilsa!


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.04.2005 15:34:02 / kósý

Yfirverð!

Jæja sælt verið fólkið!

Jæja ég ætla að taka aðeins svona yfirferð á lífinu seinustu daga! Það gerðist nú ekkert marktækt vikudagana en um helgina skellti ég mér í borg óttans og hafði það bara ansi fínt!! Ég fór með tengdamömmu minni, Önnu Karen og Sindra Þór. Við flugum fráAkureyri og það var í fyrsta skiptið sem að sonur minn fór í flugvél, og hann var að deyja úr spenningi allan föstudaginn! Sagði alltaf aftur og aftur að honum hlakkaði svo til og að hann væri svo heppinn að fá að fara í flugvél!! :D Við Sindri þurftum samt að dúlla okkur í smá tíma ein á Akureyri því við vorum í vél sem  að fór seinna heldur en vélinn þeirra mæðgna! Þannig að við fórum bara á 67 og fengum okkur pizzu og brauðstangir!! Það var bara ansi notalegt. Svo á leiðinni suður þá var rosalega gaman hjá syni mínum að vera í flugvél, sem var hátt upp í loftinu og það að hann væri að fljúga á skýjunum var bara ótrúlega skemmtilegt að hans mati! :P Svo kom smá ókkyrrðp og ég var pínu smeik um það að hann yrði kannski pínulítið hræddur en nei nei hann bara bilaðist úr hlátri!!!:haha: Þannig að þessi flugferð gekk bara ljómandi vel!! Ég held að það hafi verið ég sem að var mest stressuð yfir þessu öllu!!:$  En þegar komið var í borg óttans var lífinu bara tekið með ró um kvöldið, horft á ungfrú Reykjavík í beinni á skjá1. ´

Á laugardeginum fórum við í Smáralindina að vesla. Það var bara ágætt, Sigga vinkona kom þanngað og var með okkur þanngað til að hún fór í gítartíma! Svo seinnipartinn þá fórum við bara þanngað sem að við gistum og vorum bara þar í róleg heitum eftir þessa búðarferð(þær eru negnilega ansi orkuétandi!!) Um kvöldið kom Sigga mín og náði í mig við fórum heim til hennar og ég fékk túr um nýju íbúðina og leist bara vel á! Síða fórum við á American style og fengum okkur að borða ásamt annari vinkonu okkar sem mun heita Elín!! Ég hélt mér í sama gamla vanann og fékk mér pítu!! Þær eru svo góða þarna. Ég ætla alltaf að bregða út af vananum og fá mér hammara, sem að ég hef reyndar aldrei smakkað!!8|, en ég fæ alltaf vatn í munninn þegar ég sé myndina af pítunni og enda alltaf með því að panta hana! En já eftir matinn var aftur haldið heim til Siggu og við sátum bara í róleg heitum með tónlist og spölluðum. Svo var haldið út og stefnan tekin í pool!! Ég veit ekki alveg enþá hvernig henni tókst að lokka mig í pool, því ég er ekki mjög góð í þessu sporti og hef aldrei haft mjög gaman af þessu, en hún Sigga mín er mjög sanfærandi manneskja!!! En þetta var bara fínt, og kannski ekkert skrítið þó svo að mér hafi fundist þetta fínt því ég stóð uppi sem sigurvegari!!! :haha: En það verður samt að játa að þessir sigrar voru bara aulaheppni í mér!!:frown: En ég átti samt marga góða takta þarna í minni aula heppni!!!:haha: Eftir poolið var stefnan tekin á götur borgarinnar og farið á rúntinn!! og svo heim um 4!

Á sunnudeginum var stefnan tekin á Selfoss því þar var fermingaveisla í Vigdísarætt. Við vorum þar allan daginn og fórum svi þaðan beint í flug norður. Við vorum komin í Lund um 11.

Þannig að þetta var bara nokkuð góð helgi;)

Næsta helgi verður örugglega fín líka, ég fæ að fara á ball á afmælinu mínu!! Elvar minn kemur heim og fer með mér!! En það lítu út fyrir það að ég verði bara ein heima á afmælinu mínu, reyndar verður Sindri hjá mér, en ég held að Krumminn minn sé að fara með pabba sínum í Grímsey á föstudag og spila þar um kvöldið og ekki veit ég hvenær þeir koma til baka á laugardeginum og svo eru þeir líka að fara að spila um kvöldið!! En ég læt þá bara einhverja aðra dekra við mig á afmælisdaginn!!

En takk fyrir mig í bili og ég bið að heilsa!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.04.2005 11:24:36 / kósý

Bla bla!

Jæja sælt verið fólkið!! Ég er ekki alveg eins pirruð eins og í seinustu fæslu en er samt hreint ekki búin að jafna mig á þessu öllu saman! Ég er enþá á þeirri skoðun að sumt fólk er FÍFL!!!!:evil::evil:

Á laugardaginn fór ég með mömmu minni í Sandfellshaga á fatakynningu hjá Lindu það var bara ansi fínt. Svo skrapp ég í Leifstaði til Huldu því hún var búin að segja mér að hún væri með aðeins af fötum á Sindra, og það sem að hún kallaði aðeins var HEILL RUSLAPOKI!!! 8| Það finnst mér nú vera frekar mikið ekki aðeins!! En svona kemur sér alltaf vel:D 

Um kvöldið þá var ég í matarboði hjá Lísu og var það bara ansi gott. Þarna voru Lísa, ég, Ingibjörg og Erla Dögg! Þetta var ansi gott kvöld hjá okkur stelpunum! ;)Það var mikið spjallað um ýmiskonar málefni, hlegið frekar mikið, drukkið ansi mikið af Rauðvíni og einnig aðeins af Rósavíni og svo slurkuðum við Erla í okkur bjór þegar var farið að líða á morguninn og allir farnir að sofa nema við!!! 8| Ha við erum BYTTUR!!! Annars er ég nú ekkert búin að vera svona ofvirk í áfenginu eins og hérna á tímabili!! :haha: Batnandi KONUM er best að lifa!!!8)

Á sunnudeginum var lífinu bara tekið með ró!´Ég var nú samt alls ekki þunn, en ég var bara ein heima og hafði það gott! :D Srákarnir mínir voru í afmælisveislu á Litlu Reyjum og komu ekki heim fyrr en 8 um kvöldið!! Ég  leyfði mér að fara í sjoppuna og fá mér pizzu og drekja henni í kotelsósu!!:^)  Ekki var það nú kannski sterkur leikur hjá mér,allavega ekki svona fyrir FOKINGS aukakílóin!! :evil::cry: En maður verður stundum að leyfa sér svona hluti

Núna er ég stödd heima hjá mömmu minna því litla systir mín er veik og mamma varð að fara í vinnuna þannig að það sem að ég er ekki að gera neitt í augnablikinu var ég fengin hingað til að hjúkra litlu dömunni! Sem er núna að horfa á Hefðakettina í miljónasta skiptip og ég neitaði að taka þátt í því!!!  ;)

En jæja´ég er hætt þessu rugli heyrumst síðar!!!

Já og þið stelpur sem að skoðið þessa síðu og verðið á svæðinu í sumar er ekki málið að hafa bolta aftur?? Ég er heit fyrir því. það var svo GAMAN í fyrra!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.04.2005 17:04:20 / kósý

Pirringur DAUÐANS!!!

Jæja gott fólk þá er ég mætt aftur eftir smá hlé!! Ekkert hefur gerts í sambandi við þessa eða þennann sem var á móti gribbusvip!! Gugnaði persónan eða!? Ja maður spyr sig!!

Eins og sést á titlinum þá er pirringur dauðans að eiga sér stað í kollinum á henni Kristínu Ósk Stefánsdóttu!!! Ég ætla ekki að nefna nein nöfn hér er sumt fólk er ALGJÖRLEGA SNARGEÐVEIKT 'I HAUSNUM!!! Ég er bara búin að vera hér og vita bara hreinlega ekkert hvað ég á að gera eða segja!!! Sumt fólk getur greinilega ekki fundið sér neitt skemmtilegra að gera heldur en að sitja heima hjá sér og spinna einhver FOKKINGS lygavef og sögur!!! Og svo labbar það bara út og deilir þessu með öðru fólki eins og ekkert sé sálfsagðara!! Mér finnst þetta alveg ótrúlegt helvíti!! Þegar fólk er farið að búa til sögur um hina og þessa, og sögur sem eru alls ekki fallegar og segja öðrum frá og fullirða það að einhver ákveðinn aðili, sem að er ég í þessu máli, hafi sagt sér þetta!!! Og svo þegar það er farið að ganga á viðkomandi þá er bara farið að draga úr málinu!! Og svo 2 dögum seinna þegar fólk er búið að hugsa málið og mæta þá aftur og fullirða eitthvað annað samtal sem að átti að hafa farið á milli mín og þessara FOKKINGS manneskju!!! FÓLK ER FÍFL!!!!! :evil: Ég er svo reið og sár að ég veit hreinlega ekki hvað ég á að gera af mér hérna!! Kannski finnst einhverjum asnalegt að ég sé eitthvað að flippa hér en eitthvað verð ég að gera!! Það er eiginlega ekki hægt að eyða orðum á svona helvítis fífl!!!!:^)

Jæja yfir í eitthvað jákvæðara, mér er boðið í matarboð annaðkvöld hjá henni Lísu og bíð ég bara spennt eftir því!! Ég veit samt ekki alveg hverjar fleiri verða þarna en þetta verður örugglega skemmtilegt og ágætis tilbreyting!!

En já ég held að ég kveðji bara í bili áður en að ég fer að truflast eitthvað meira hér og jafnvel nefna nöfn!! BLESS


» 4 hafa sagt sína skoðun


Myndir
Könnun
Er ekki lífið DÁSAMLEGT???