Jæja þá er
komið að aðeins yfirferð!!
Það má nú til gamans geta að í dag
á ég AFMÆLI, reyndar ekki ég ein heldur eru 3ár í dag síðn við
Tryggvi trúlofuðum okkur- nokkuð gott það!
! (allavega svona á
okkar Tryggva mælikvarða!!)
En já nóg um það
helgin var nú bara alveg ágæt!
Á föstudagskvöldi þá var maður
bara í róleg heitum fyrir framan sjónvarpið.
Á laugardeginum forum við litla
fjölskyldan á ísmót í Keldunesi. Það var bara mjög fínt, það var
bara mjög góð mæting á þetta. Svo var kaffi í gamla húsinu á eftir
og það var alveg magnað! Svo hitti ég Rakel, Jón og nöfnu mina hana
Kristínu Báru. Ég hef sko aldrei séð hana svona með berum augum
áður, bara á myndum! Hún er algjör dúlla og ég myndaði hana í bak
og fyrir, og þau Sindra. Sindri Þór var mjög hrifin af henni og
vildi helst fá að taka hana með heim!
Um kvöldið forum
við Tryggvi, Erna og Siggi í Skúlagarði niðrí Íþróttahús á
gleðskapinn sem að var haldin þar. Það var bara mjög skemmtilegt,
það var búið að gera íþróttahúsið mjög kósý og sætt!
Hljómsveitin var nú bara mjög góð og það var bara fínasta mæting á
þetta. Ég og minn forum heim um 3 en það var nú ekki alveg einróma
samþykki hjá okkur hjónum!
Hann vildi endilega djamma meira þó
svo að hann labbaði með lokuð augun, og labbaði aftur á bak jafnt
sem áfram og einnig var aðeins labbað til hliðar!!
Já þannig er
það. Ég ég setti nú bara upp gribbu svipinn
og þá hafðist
hann heim, eða réttara sagt Baldur hennar Ingibjargar fór með hann
heim því hann var á bíl og þá gekk þetta betur fyrir sig. 
Á sunnudeginum fór
ég yfir til mömmu rétt eftir 1 og var þar allan daginn því ég var
þar með krakkana meðan mamma fór að skúra Hreppskrifstofuna en
sumir lágu bara upp í rúmi ALLAN DAGINN!!! (ég nefni engin
nöfn!!)
En já þetta var
helgin mín! Svona alveg hreint æðisleg!!
Í dag var ég hjá
ömmu ósk að gera kleinur, það gekk nú bara ágætlega hjá okkur
nöfnum. Ég held að ég láti þetta bara gott heita í bili, bið að
heilsa gott folk!