Kósýland

Velkominn í minn heim

28.02.2005 11:52:36 / kósý

Yfirferð

FIMMTUDAGUR: Dagurinn í heild sinni var nú ekkert sérstakur, var nú samt í heimsókn hjá Ernu minni eftir vinnu hjá henni og áður en að ég þurfti að fara að ná í son minn á leikskólann! Eftir að ég var komin heim þá varð ég allt í einu OFUR dugleg, ég veit ekki hvað hljóp í mig!!8| En ég allavegana fór eins og ég veit ekki hvað um allt hús og lagaði til og þreif!! Meira að segja sonur minn var frekar hissa á mér og hafði engan vegin orku í það að elta mig út um allt hús í þessu ástandi!!:|  En þegar fór að síga á seinni hluta þessa dags fór ég þá að koma mér í sturtu og finna náttföt fyrir kvöldið. Þegar ég var svo búin að þrífa af mér skítinn, koma mér í náttfötin og gera það besta úr því að fegra mig var leiðinni haldið til Ernu og þaðan ,með henni í Lund í náttfatakonuklúbb hjá Arnþrúði. Þetta var bara mjög gott kvöld og boðið var upp á mjög góðar veitingar  þeim var að sjálfsögðu gerð góð skil!!! Eftir klúbbinn forum við Erna heim til hennar og fengum okkur bjór(ég held að ég stefni ansi hratt í það að verða alki, því aldrei hefur mér fundist bjór sérstaklega góður)!!!!;) Svo var farið að sofa seint og síðar meir!!:haha:

 

 



 

 



FÖSTUDAGUR: Man nú ekkert sérstaklega eftir deginum sjálfum þannig að ekki getur hann hafað verið skemmtilegur(nema að ég sé bara farin að kalka) En líklegt finnst mér þó að ég hafi eitthvað heimsótt Ernu eftir vinnu hjá henni!! :haha:Um kvölið vorum við Sindri ein heima því Legó var í Ýdölum að spila á einhverju balli fyrir skólakrakka! Við forum aðeins í heimsókn til Ernu og Bergþórs og svo heim með hann í háttinn: Ég horfði svi bara á idolið. Seinna um kvöldið fór ég með hundinn í göngutúr og fór að sjáfsögðu til Ernu og við gerðum tilraun til að drekka bjór sem ég kom með sem reyndist svo vera útrunnin(er maður alki eða alki???):$8|

 

 



 

 



LAUGARDAGUR: Fórum í Lund því ég var að þrífa sófasettitð fyrir tengdó!! (geðveikt góð tengdadóttir!!!) Við vorum þar allan daginn og gistum líka og ég fékk bjór (hallo ALKI!!!!):$:$  já og við vorum lóka sunnudaginn í lundi bara að hanga og vesenast!!!

 

 



Næsta helgi gæti átt eftir að vera skemmtileg!! Þá er Legó og konur + Gulla og Stebbi að fara í Grímsey!! Þeir eru að fara að spila þar, Við forum út í eyju á föstudagsmorgun!! En segji sinna frá því, ég er hætt að pikka hér í bili!!!!;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.02.2005 16:50:30 / kósý

Heilsuganga eða???

Jæja gott fólk héer er ég mætt eina ferðina enn!

Í gærkvöldi þá fórum við Erna mín í heilsubótagöngu!!!!:lol: Þetta var nú ansi fyndin ganga, því hún var eiginlega ekkert til heilsubótar!!! Hún fólst aðalega í því að sitja  og spjalla með tilheyrandi hlátrasköllum og hreyfingum!! Já og kannski eitthverju fleiru sem ekki verður greint frá hér á þessari síðu!! (EINKA). Er það ekki Erna????:haha:. Það er ekki víst að okkur verði hleypt svona saman út að kvöldlagi aftur!!. Maður gæti STINKAÐ!!!! (EINKA):lol::lol:

Já já nóg um þetta málefni. Ég var úti með systur minni og syni mínum hérna áðan. Við vorum með ömmu ók að renna okkur hérna ílöngulaut, krökkunum fannst þetta ekkert smá skemmtilegt, og mér svo sem líka! Ég var sko líka að renna mér! Þetta endaði með því að við öll vorum að rennsa okkur á einni snjóþotu(og ekki eru þær stórar) Það var þannig að ég sat með annað barnið og hitt var á bakinu á mér!! Þetta var þvílík skemmtun fyrir þau en kannski ekki alveg eins skemmtilegt fyrir mig, því mér var eiginlega orðið frekar illt í bakinu eftir þetta.

Jæja annað kvöld það er komið að konuklúbbnum og að þessu sinni verður hann hjá henni Arnþrúði og þema kvöldsins eru náttföt!!! Það verður örugglega ansi skemmtilegt:lol: ég þaff reyndar að lána einni dömu náttföt því það er vít lítið um þau hjá henni og það eina sem hún á er víst frekar efnislítið og ekki hægt að vera á almannafæri í svoleiðis flík!

Mamma og pabbi eru búin að stinga af frá þessu landi og ætla að vera í 2vikur í sól og fíneríi(ég man ekki alveg hvar þau eru) Guðný og jón Gríms eru með þeim þarna úti þannig að það er örugglega nóg um að vera hjá þeim!!

Jæja ég kveð að sinni, takk æðilsega og bæ!


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.02.2005 17:22:55 / kósý

ekkert rosalega dugleg!!

Jæja sælt veri fólkið!! Ég er ekkert að standa mig í þessu blogg dæmi!:(   Það er kannski vegna þess að ég þarf alltaf að fara til mömmu eða ömmu til að komast í tölvu! Maður er kannski ekkert alltaf í stuði til að standa upp úr sófanum og rölta út!

En já um helgina fór ég til Akureyris mað kallinum mínum(Sindri Þór var í lundi) Þetta var mjög fínt. Við fórum á laugardaginn og byrjuðum á því að versla í Haggaranum. Svo fórum við að borða á 67. Eftir það vorum við búin að ákveða að fara bara í lónin í Mývatnssveit og svo í heimsókn í Litlu Reykji. Tryggvi hringdi í Valþó og þá var hann á leiðinni inn á Akureyri á Jet black joe!!! Við vissum ekki að þeir væru að spila. Þannig að við snar hættum við að fara í lónin, því okkur fannst hálf hallærislegt að fara bara heim. Þannig að minn hringdi og pantaði herbergi á Gistiheimili Akureyrar og þar skriðum við inn.   Ég skemmti mér mjög vel í sjallanum, enda var ég að eins að fá mér í tánna! :lol: Erla mín kom þarna og var með okkur allt kvöldi, ég var ósköp fegin þegar ég sá hana því þá var ég búin að sitja með Tryggva, Valþóri og einhverjum tveimur öðrum strákum og var aðeins farið að vanta svona kvennleika í kring um mig!!  Þetta kvöld var mjög skemmtilegt eins og ég sagði hér áðan, en ég var reyndar aðeind ósátt við það hvat JBJ tóku fá lög eftir sjálfa sig, og þau lög sem voru eftir þá sjálfa komu aftur og aftur!! Og svo var Palli orðin svo drukkinn að það var svona frekar "sjabbí!":$ Hann var kominn niðrá gólf að hamast á kellingunum og þær að hamast á honum!! (og hann var tiltöllega ný búin að sýna hringinn sinn til að fá frið frá einhverri stelpu!!) Frekar hallærislegt.!!! Þó svo að maður sé frægur þá er það ekkert leyfi á það að halda fram hjá! Svona fólk sko:evil: Svo fyrir utan allt annað þá finnst mér hann svo LJÓTUR!!! (og Vigdísi finnst hann og Tryggvi líkir!) Þegar hún sagði þetta við mig þá spurði ég hana hvort henni finndist Tryggvi virkilega svona ljótur!!??:^) Mér finnst þeir SK EKKI LÍKIR!!! Þá held ég að ég væri ekki með Tryggva mínum! Já ég er aðeins að missa mig hérna!   En sem sagt þá var þetta mjög fínt kvöld.

Já núna þessa viku er ég að leysa af á leikskólanum, það er mjög fínt bara!;) Ég held að ég þakki bara fyrir mig í bili


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.02.2005 18:47:47 / kósý

Bla

Komið þið marg blessuð!!

Jæja í gærkvöldi var konuklúbbur hjá henni Ernu minni og það var öskudagsþema þannig að við vorum í voða flottum búning!! mannurinn minn var ekkert allt of hrifin af mér! Honum fannst ég alls ekki sæt!!! Og sagði svo þegar ég sagðist ætla á bílnun "já og í guðana bænum ekki láta nokkurn mann sjá þig svona"!!! Laglegt! En ég fór nú í sjoppuna þannig að það var fullt af fólki þar!! En þessi klúbbur var bara mjög góður. Við Erna viðruðum þá hugmynd að fara í helgarreisu þegar ungfrú norðurland verður til að stiðja við batkið á Lilju "BJÚTÍ"! Því var bara ansi vel tekið. Það á reyndar eftir að tala við hana Arnþrúði, en hún á sko afmæli á þessaum degi og ekki er vitað hvort að hún vill eyða honum í okkur.

Já svo í dag fór ég aftur í grímubúning með syni mínum og systur minni, til að fara og syngja fyrir gamla hrukkudýri, (öðru nafni amma Erla) Því leikskóla krakkarnir fóru ekki í mörk til að syngja fyrir gamla fólkið eins og til stóð (það gleymdist að láta vita að hætt hefði verið við þetta)og varð gamla frekar sár!! Þannig að ég ákvað að bregða undir mig betri fótunum og versa góða stelpan svona einu sinni!!:haha::haha:

Jæja fleira var það ekki, Takk æðislega og bæ!:P


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.02.2005 17:10:09 / kósý

Ferðalagið og helgarpistill

Jæja núna er ég komin aftur og get þá greint frá þessu ferðalagi sem að ég fór í á föstudaginn! Ég ,Eyrún og Gulla fórum með mommu inn á Húavík. Ég þurfti að ná mömmu með mér út úr húsinu án þess að gefa henni neina ástæðu og ég var búin að kvíða fyrir því í marga daga en það gekk mjög vel!! Ég ruddist hér inn og skipaði henni að skipta um föt(kella var í íþróttagallanum og ný komin frá Siddu), og hún gerði allt eins og henni var sagt. Ég mútaði henni líka með smá bjór!!;) Svo lagði ég af stað með hana í Klifshaga til að ná í hinar dömurnar. Og við fífluðust með hana eitthvað á leiðinni og sögðum við hana að við værum að fara í sjóferð(mamma er FREKAR veik alltaf á sjó!!) Og svo vorum við farnar að tala um flugmiða! Já og lúðu og hákarl, og allskonar eitthvað sem að mömmu finnst ógeðslegt! En við vorum voða sætar og góðar við hana og fórum með hana á snyrtistofu Hilmu á Húsavík og gáfum henni freyðivín og svo fór hún í handsnyrtingu,litun og plokkun og svo förðun í smá plús og hún var algjör gella eftir þetta!!:D Svo var ferðinni heitið á Sölku þar sem magarnir voru fóðraðir! Við sátum þar lengi eftir að við vorum búnar að borða bara að spjalla saman um allt milli himins og jarðar, við vorum ekki komnar á Kópasker fyrr en um 2!   Svo þegar ég var búin að skila mommu af mér fór ég til Ernu minnar og sat aðeins hjá henni.

Á laugardaginn fór ég í barnapartý á Hóli í sameiginlega veislu Hilmis og  Bjarteyjar. Það var ágætt. Svo borðuðum við Sindri hjá mömmu og co, Tryggvi var að spila í Reykjarhverfi. Svo um kvöldi þá sátum við Erna heima hjá mér langt fram eftir að "sulla" í áfengi!! Það var mjög gaman hjá okkur, hún sagðist ætla að drekka mig undir borðið og fara svo en ég var enþá lifandi þegar hún fór8)! Og meira að segja lengi á eftir, ég fór bara inn í herbergi að horfa á video og var rétt sofnuð þegar Tryggvi kom heim.

Jæja bið bara að heilsa í bili!


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.02.2005 16:03:15 / kósý

fyndna ég!!

Jæja þá er mamman mín orðin 40 ára skvísa!!!! :lol:Ég var voða fyndin í gærkvöldi og hljóp yfir til hennar með gerfi rós og 2 uppblásna smokka sem að ég var búin að skrifa á 40 ára mega beib!! Mér fannst þetta geðveikt fyndin, og mömmu minni líka þannig að það er greinilegt að maður verður greinilega ekkert þroskaðri þó að maður sé orðin amma komin á gamalsaldur;)!!!!!

Ég var voðalega dugleg í morgun, ég tók bílinn minn og þreif hann allan að innan og það veitti sko alls ekki af því, hann var farin að lykta ansi illa!!!!! Þannig að hann er orðin ansi fínn núna!!

Ég er að fara í ferð á morgun sem að ég get ekki skýrt frá núna því það eru aðilar sem að mega ekki komast að því þannig að ég segi frá því síðar!!

Jæja ég er eitthvað voðalega hugmyndasnauð eitthvað núna og svo er ég líka í símanum að tala við Ernu mína þannig að ég er ekki alveg að meika þetta allt!!!!! Bið að heilsa!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.02.2005 17:14:48 / kósý

Helgarpistill

Þorrablót í Skúlagarði!!!:

Jæja þá er Þorrablótinu lokið og það var mjög skemmtilegt, að mér fannst allavega. Það var mikið lagt upp úr skemmtidagskrá. Það var mikið sungið, komið með skot á marga, það voru leikþættir og svo verlaunaafhending! Þannig að þetta var mjög fínt allt saman! Ballið var mjög fínt og hljómsveitin mjög góð(það er nú kannski ekki alveg að marka  mig í þessu samhengi, mér finnst Legó alltaf góðir!:o) En mér sýndist allavega allir skemmta sér vel þarna. Mér var skipað af mínum manni að finna mér dansfélaga, og hann varð að vera ljótari en hann!8| Og sá sem ég valdi var nú ekki alveg á því að ég gæti þá dansað við hann, en það var Bjarki á Hóli:haha: En ég neyddi hann samt í nokkra dansa méð mér og drengurinn er svona ansi fínn dansari!! Ég dansaði svo loka vinardansinn við hana Arnþrúði mína, og það var við lagið TRAUSTUR VINUR, en við teljum okkur ekki þurfa trausta vini!! Við erum semsagt formlega óvinkonur núna!!:klikk: (Við vorum búnar að ákveða það fyrir ball vegna tarootspila sem við vorum með í konuklúbbnum)

Ég var nú ekki vör við að fólk væri eitthvað að parast, slást eða þess háttar, en eins og ég sagði frá af seinasta þorrablóti þá hefði alveg eins getað verið stórstríð og orgía þarna á staðnum!:$ En ég ætla að þakka henni Magneu Dröfn hér með fyrir hennar dyggu aðstoð sem hún veitti ákveðnu hári og ákveðinni hálfsfesti þarna í Skúlagarði:lol: Þúsund kossar og þúsund þakkir krútt!!!

En já eftir blót var haldið af stað í Hól til að gæjast aðeins í trollin áður en haldið var heim að sofa, þegar við komum þanngað þá voru Rúnar og Helgi Valur einir í húsinu og það var nú misgáfulegt!! Kallarnir voru náttúrulega alveg á rassgatinu gaulandi einhverja bölvaða vitleysu og svo eftir smá stopp þarna var Rúnar mættur á svona traktorsþríhjóli,sem að Hilmir litli á (ég átti svoleiðis þegar ég var krakki),og hjólaði hringi í eldhúsinu og gaulaði eitthvað bull og setti upp svip aldarinnar(og það skal engan undra þó Magnús greyið sé eins og hann er!) En svo þegar við loksins votum búin að snæða og hlæja ansi mikið þá var haldið heim!! Sem var gott því ég var farin að sjá rúmið mitt í hillingum(Tryggvi miskildi það og hélt að ég hefði sagt að ég væri farin að sjá Rúnar í hillingum!)

Já þá held ég að ég láti þetta nægja í bili, ég bulla eitthvað hérna síðar og Magnea enn og aftur TAKK!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun


Myndir
Könnun
Er ekki lífið DÁSAMLEGT???