Kósýland

Velkominn í minn heim

26.11.2005 14:36:38 / kósý

Kýrin mjálmaði gagalagú!!

Halló halló!!!

 

 



 Ég er semsagt á lífi, hef bara ekki verið í neinu blogg stuði, hef líka verið half hugmyndasnauð upp á síðkastið!! Hausinn er bara búin að vera algjörlega TÓMUR!!!!8|

 

 



Titilinn á þessu bloggi finnst mér vera algjör snilld!!!:haha:  Þetta söng sonur minn fyrir mig og svo þegar að hann fattaði hvað hann hafði sagt þá bara bilaðist hann úr hlátri og sagði svo bara “ég trúi þessu ekki, ég trúi ekki að ég hafi sagt þetta!”:haha: :haha: Mér fannst þetta alveg brjálæðislega fyndið!!!:haha:  Hann kemur oft með svona rugl!! Svo núna um daginn þá kom dótablaðið og hann sat og fletti því og sagði hvað eftir annað “ég trúi þessu ekki, ég trúi þessu ekki” Hann er alveg ótrúlega fyndinn!!! Svo fékk ég ástarjátningu frá honum í gær!! Hann sagði mér það að hann elskaði mig alltaf alla daga eins og í gær!!! Og hann sagði mér það að hann elskaði mig af því að ég væri alltaf svo góð!! Þetta bræddi nú alveg í manni hjartað!!!! :D En annars fannst mér þetta líka svo fyndið því að ef að ég segi nei við einhverju sem að hann er að biðja um þá segir hann alltaf við mig að ég sé sko ekkert góð og að hann elskar mig sko EKKI neitt!!!:klikk:  Spurning hvort að það sé smá dramadrotning í honum!!!!:haha:

 

 



Vinnan er bara búin að ganga sinn vanagang upp á síðkastið, það var reyndar verið að kjósa nýja stjórn um daginn og nýju stjórnina skipa ég, Víkingur  og Andri Þór!!! Þannig að nú getur maður farið að láta sér detta allskonar vitleysu í hug og framkvæma hana!!:haha: ! Fara í vettfangsheimsóknir á alls konar vitleysis staði!!!:haha:  Það verður nú bara skemmtilegt! Svo var ákveðið að skella sér á Jólahlaðborð á Raufarhöfn 3. desember! Ég fer nú bara makalaus, reyndar var ég búin að tilkynna bróður mínum að hann kæmi með mér ef að Tryggvi minn kæmist ekki með mér. Og það er reuninn hljómsveitin Legó verður nefnilega að spila á Húsavík þetta kvöld.  Og í kvöld verða þeir að spila á Þóshöfn þannig að ég verð bara ein heima, ja eða þannig ég verð náttúrulega með Sindra og Remma hjá mér, en samt sem áður bara ein!!:cry:

 

 



Já ég var voða dugleg áðan, ég var að gera helgarhreingerningu. Sindri stakk mig bara af yfir til ömmu Ósk, hann nefnilega þolir ekki þessi læti í ryksugunni!!!! En já það er held ég ekkert meira að segja af mér og mínum í bili bið bara að heilsa!!:haha:


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.11.2005 17:04:52 / kósý

hahahahahahahahah eða eitthvað bara

Halló sæta fólk!!! :D8)

Jæja ég var ekki grasekkja um helgina og fannst það nú annsi ljúft bara en er nú orðin aftur grasekkja!!!

Og sonur minn er orðin sáttur aftur við lífið því það fær hann að sofa í friði með mömmu sinni!!! Hann fór alveg á kostum í gær þegar ég sagði honum að pabbi hans væri farin aftur langt í burtu að vinna, það kom algjört snildar glott og hljóðin sem að komu þegar að hann fattaði að nú gæti hann sofið hjá mér voru hreint út sagt dásamleg!!! Það er engan vegin hægt að lýsa þessu hérna á prenti en eins og ég segji þá var þetta ÓBORGANLEGA fyndið!!!:haha::haha:

Hann var nú líka ansi fyndin í morgun, því að hann var alls ekki að nenna að fara á fætur, hann sagðist ekki geta farið á fætur því augun hans væru klístruð föst!!! Það amaði ekkert annað að nema bara það að hann nennti ekki að opna þau!!!;)

 Ég þurfti í dag að rjúka í bankann til að skrifa undir enn eitt blaðið í sambandi við þetta hús. Ég get svo svarið það að ég er orðin virkilega ÞREYTT á nafninu múnu eftir þessi ósköp. Mér finnst ég hreinlega ekki gera neitt annað en að skrifa þetta blessaða nafn á blað fyrir fullt af einhverju fólki!!!! Ég hefði nú ekki haft neitt á móti því í öll þessi skifti að ég héti bar einhverju MJÖG stuttu nafni!!! En ég held að þessu sé loksins lokið!!!!

Vinnudagurinn var bara með ósköp hefðbundnu sniði í dag, nema bara að við Erna fórum í skilavöru eftir hádegi!!

 Jæja ég læt þetta gott heita af rugli í dag, bið bara að heilsa dúllurnar mínar!!! 8)

Kristín Ósk Stefánsdóttir (bara að prófa þetta svona líka, þetta er líka leiðinlegt!!)


» 22 hafa sagt sína skoðun

10.11.2005 17:16:54 / kósý

Argasta gargasta!!

Halló hæ!!

 

 



Jæja þá er maður orðin grasekkja eina ferðina enn!!!(verð nú samt að passa mig að kvarta ekki mikið yfir þessu, þetta fór víst fyrir brjóstið á einhverjum hérna ekki alls fyrir löngu!!)  Kallinn minn er stunginn af til Vopnafjarðar eitthvað að dandalasrt í einhverju bryggjuverki! En það er einn ungur drengur sem er aðeins sáttur við það og það er sonur minn, því að þá getur hann fengið að lulla í pabba holu hjá mömmu sinni!!!:haha:  Hann tilkynnti mér það í gær að hann yrði að sofa hjá mér í mínu rúmi því annars færi ég bara að skæla ef að ég væri ein!:haha: ! Hann er flottastur!! Hann er allavega það besta sem að ég hef afrekað og er bara nokkuð montin með mig, því hann heppnaðist svo vel!! (smá mömmu væmni í gangi!!):haha: :haha:

 

 



Það er alveg ótrúlegt hvað allt þarf að læðast í bakið á manni!!!:whut:  Ég var hin saklausasta að koma heim úr vinnunni og ákvað að ath hvað hefði komið í póstinum og þá var þar tilkynning um það að ég ætti pakka frá H&M á pósthúsinu, innihaldið eru föt sem að ég pantaði fyrir LÖNGU og hélt að kæmu ekkert úr þessu.:whut:  En nei þessir brjálæðingar hafa fundið lyktina af peningaleysi mínu og ákvað að nú væri nú best að senda Kristínu litlu smá reikning fyrir fatatuskum!!! :^) :evil: Farið þetta bara alveg í argasta helvíti þetta lið!!!!:evil: :evil: Já varð bara að lýsa óánægju minni yfir þessu því ég er alveg hin fúlasta yfir þessu!!!:cry:

 

 



Vinnan í dag gekk bara sinn vanagang, ekkert merkilegt gerðist þar, engar slúður sögur og barasta ekki neitt! Við hljótum að vera eitthvað að slakna þarna!!!:$

 

 



Gærkvöldið var með rólegasta móti hjá mér í gær, var bara half meðvitundarlaus fyrir framan sjónvarpið langt fram eftir nóttu!!:$  Samt man ég nú ekkert hvað var í þessum blessaða imba! En ég horfði nú líka mikið bara eitthvað á vegginn.8|  Ég veit satt best að segja eiginlega ekki tilhvers ég lá þarna eins og skata, ég held að ég hafi verið OF löt til að drullast á lappir og fara inn í rúm og sofa bara!:S  Ég var líka alveg að mygla svona framan af í morgun!! Skemmtilegt það!8|

Jæja ég bið bara að heilsa í bili!!!:haha:


» 120 hafa sagt sína skoðun

05.11.2005 12:55:28 / kósý

Ravis and Travis!!!

Halló gott fólk!

 

 



Jæja lítill tími hefur gefist til að vera eitthgvað að blogga þessa dagana! En maður reynir að bæta eitthvað fyrir það annað slagið!! Seinustu dagar hafa bara verið ósköp venjulegir, vakna,borða, vinna,borða,vinna meira, borða meira og reyna að taka allt upp úr kössunum!!! Það gengur svona þokkalega en það er nú samt alveg nóg eftir samt!! Svo er það bara einhvern veginn þannig að maður hefur ósköp takmarkaða orku á kvöldin eftir vinnu til að ganga eitthvað frá! En þetta hlýtur að hafast á endanum, eða það vona ég!

Annars fór ég alveg aftur í barnæskuna í gær og hafði mikið gaman af því! Ég fór með SindraÞór og Ernu Rún út á Klif að renna, fyrst voru það bara þau en svo var ég farina ð renna mér með þeim!! Þetta var rosalega skemmtilegt bara!!! Snjórinn var þannig að maður rann lengt út á fótboltavöll!!! Þetta var bara ósköp hressandi og það var líka svo gott veður þannig að það gerði það mikli skemmtilegra!!! Gærkvöldið var bara tekið með ró, bara sjónvarpsgláp og kók!

Legó kallarnir mínir eru á leiðinni til Egilstaðar til að spila á balli, þeir hringdu áðan og voru einhversstaðar á einhverri heiði að bíða eftir aðstöð vegan þess að kerran var eitthvað biluð!

Myndirnar af Sindra Þór og Ernu Rún eru komnar og þetta eru ótrúlega góðar myndir, eiginlega miklu betri en maður þorði að vona!!! Mér var tilkynnt af móður minni í gær að jólagjafirnar í ár mundu koma voðalega mikið á óvart eða þannig!!! Það verður stækkuð mynd að gullmolanum mínum!!!! Ég er nú bara mjög ánægð með það!!

Annars er aðeins byrjað að tala um jólin heima hjá mér, samt aðalega jólasveinana, hvenær þeir fara að koma!! Hann sagði líka að maður yrði að vera góður því annars yrðu jólasveinarnir reiðir og þá fengi maður ekkert nammi úr pokanum þeirra!!! Svo er bara að bíða og sjá hvort að það gengur eftir!!!

Í morgun var ég að tala við Sindra um það að hann væri með gæsahúð því honum var svo kalt en hann var nú ekkert sáttur við það og sagðist ekki vera gæsahúð ég gæti bara verið gæsahúð!!! Smá misskilningur í gangi þarna!!!

Jæja ætli það sé ekki best að hætta þessu bulli og reyna að fara og skúra og svoleiðs heima hjá sér, see you!!!


» 9 hafa sagt sína skoðun


Myndir
Könnun
Er ekki lífið DÁSAMLEGT???