Jæja gott fólk ég er sem sagt búin
að taka í rassgatið á sjálfri mér og er reyni hér með að koma
með nettann pistil!!! 
Ég var víst klukkuð hér um daginn og átti alltaf
eftir að koma hérna með atriði en nú er ég reddý og hér kemur
það!!!!
1. Ég hef orðið fyrir þeirri miður skemmtilegri
lífsreynslu að slasa aðra manneskju illa! Og ekki nóg með það
heldur þjáist ræfillinn fyrir það enn þann dag í dag! Slys þetta
geriðst í algjörum töffaraskap, ég þurfti að sýna hvað ég gæti
hjólað hratt og var með manneskju á böglaberanum. Fótur
manneskjunar pikkfestist í dekkinu ig minn bara
hjólaði áfram!!Úrskurður frá lækni var sá að greyið reyndist
fótbrotinn!! Þessi óheppna manneskja er minn heitt
elskaði bróðir!!!
2. Eitt sinn sar ég inn í herbergi einu með einum
strák og einni stelpu. Við sátum
þarna þrjú og horfðum á video,
ljósin voru slökkt, og allt í einu heyrði ég kossaflens og
einhverjar stunur!! Síðan heyrði ég að stúlkukindin ræskti sig, hún
var að minna á smokkinn!! Hann var rifinn upp og svo byrjuðu lætin.
Mér fannst þetta mjög óþægilegt og enþá óþægilegra þar sem að ég
vissi að stúlkan var að missa meydóminn!! Ég reyndi að láta lítið
fyrir mér fara og vonaðist tol að þetta tæki fljótt af. Svo var
hurðinni hrundið upp og folkið í henni bilaðist úr hlátri. Því
sjónin sem þau sáu var þessi: Fólk í samförum upp í rúminu, Kristín
á gólfinu með snakk, ídífu og kók!!! ÉG VAR EKKI AÐ HORFA!!!!
OJOJOJOJ!!!!

3. Ég var eitt sinn í mínum gelluskap að keyra bíl,
allt í einu sýnist mér eitthvað spítast upp frá bílnum þannig að ég
ákvað að hægja á og BÚMM dekkið a fog bílinn plommaði á götuna! Ég
fór náttúrulega ú tog hóf leytina að dekkinu en fann ekkert! Þannig
að ég rölti af stað. Mætti svo manni og spurði hann mjög
sakleysislega hvort að hann hefði nokkuð mætt dekki!? Maðurinn
áleit mig snargeðveika en keyrði mig heim. Ekkert
hefur spurts til
dekksins síðan!!
4. Ég hef hlaupið um alsber á almannafæri, en
heppilegt fyrir alla þá mætti ég nú engum!!!!
5. Ég sef brókalaus en þó í
náttfötum!!! 
Þetta seinasta var nú bara af því að mér datt
ekkert fleira í hug þessa stundina!
En annars er allt gott
af frétta af mér og mínu liði, allt gengur sinn vanagang í
vinnunni, stríðni, kjaftagangur hlátrasköll,
BÖGG!!!!
Allt eins og lífið í Fjallalambi ætti að vera!!! Það er gott
að hlutirnir breytast ekki!!! Sonur minn fer alveg á kostum þessa dagana, það eru
miklar pælingar í gangi méð kvennkyns og kallkyns líkamann og
það er BARA fyndið!!!

En já ég læt þetta gott heita í bili,
seeya!!