Kósýland

Velkominn í minn heim

29.01.2005 14:26:20 / kósý

Blabla

Jæja þá er ég mætt hér aftur, ég er hjá mömmunni minni og er að þykjast vera rosalega dugleg að strauja skyrtuna hans Tryggva!!(en mamma er sko að því en hann veit það ekki:lol:) Já þannig er það nú, maður er aðeins komin í fíling fyrir kvöldið!:lol:

Það var konuklúbbur hjá Önku á fimmtudagskvöldið og það var bara mjög fínt. Hún var með kynningu fyrir okkur,ég man sant ekki alveg hvað þessar vörur heita en það verður bara að hafa það: Þetta var samt allt mjög fínt hjá henni.Það var reyndar ekkert sérstaklega góð mæting, en það var nú í aðalatriðum útaf veikindum, en þetta var fámennt og góðmennt!! Næst verður svona kvöld hjá okkur 10.febrúar og þá verður þetta hjá Ernu og þá á að vera öskudagsþema!! Það gæti nú orðið skemmtilegt!;)

Jæja þá held ég bara að ég biðji að heilsa í bili!! Læt vita af stemmingu eftir blót, þar að segja ef að ég man eftir því!!:$


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.01.2005 18:10:38 / kósý

Bara dugnaður í kellu!!

Halló halló ágæta fólk!!!

Jæja það er bara aldeilis dugnaður í kellu núna, bara að skrifa 2 daga í röð!!:D Ég er sem sagt heima hjá mömmu minni núna að passa systur mína því að hún þurfti að skúra og svo er hún líka að fara að passa fyrir mig á eftir!! Þannig að með greiðum skal greiða gjalda!!! ;)En já ég er sem sagt að fara í Birkiland til Önku því að það er konu´klúbbur hjá henni í kvöld, það verður reyndar eitthvað slöpp mæting af sökum veikinda, það eru ótrúlega margir veikit þessa dagana!! En sem betur fer hefur mitt heimili sloppið(7,9,13!)

Ég er með alveg ótrúlega fínar fréttir, minn og mín fjölskylda(sem eru líka allir í Lundi og allir á Hóli) erum að fara til "mæjorka" 15 -29 júní!! Mér finnst þetta nokkuð skemmtilegt!! En kannski ekki eins skemmtilegar fréttir fyrir bumbuna og sexý slitin!!:cry: En kannski maður verði bara að fara að vera duglegur og fara í stríð!!!:klikk: Það er aldrei að vita að maður gerist duglegur!! Annars er það nú þannig með mig að þegar ég ætla mér að grennast þá fitna ég og svo þegar ég er ekkert að velta þessu fyrir mér þá grennist ég!!:!: En það þýðir lítið að velta sér upp úr þessu rugli, þetta fer bara eins og það fer!;)

Jæja ég held að ég kveðji bara í bili, við hittumst heil


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.01.2005 13:08:32 / kósý

Mætt aftur

Jæja sælt veri fólkið!!!

Betra er seint en aldrei!!! Núna er maður ekkert að vinna þannig að ég er ekkert´nálægt tölvum á hverjum degi! Það var nefnilega svo heppilegt að Sindri var í pössun hjá ömmu Ósk þannig að ég gat allaf farið í tölvuna hjá henni!!

En ætli það sér ekki best á því að byrja á því að biðja minn áskæra bróður afsökunar á því að minnast ekki á hans hluta í konukvöldinu mínu!! SORRY!!!:lol: Hann sem sagt var svo duglegur að hjálpa stóru systur sinni og frestaði aðeins Akureyrarferðinni sinni til að fara heim til mín og moka fyrir mig svo að ekki þyrfti að klofa snjó upp í axlir á síðkjólunum og spariskónum (eða tæju skónum eins og sumir!!!) Og þetta var svona líka aldeilis vel gert hjá honum!! En hann hafði nú ekki eins milka trú á sjálfum sér eins og systir hans,því hann hringdi í mig til að ath hvort að þetta hefði verið í lagi og hvort að ég hefði fengið einhvern annan til að laga þetta eftir hann!! En já ástarþakkir elsku Elvar minn fyrir þetta framtak!!!:D

Jæja Þorrablótið, það var mjög skemmtilegt, þetta heppnaðist ótrúlega vel miðað við það að þetta var í fyrsta skiptið sem að þeir heldu blót!! Þessi veislustjóri var algjör snild!!! Og ballið fór bara vel fram, ég veit ekki til þess að það hafi verið neitt vesen ótrúlegt en satt!!! Ekki það er ekki þar með sagt að það hafi ekki neitt gerst því ég var nú mikið bara eitthvað í mínum eigin heimi eins og svo oft áður! Þannig að það hefði alveg eins getað verið stórstríð og orgía án þess svo að ég hafi haft hugmynd um það!!!!:D

En já ég held að ég láti þetta gott heita í bili, er bara að fara að undirbúa mig fyrir næsta blót sem er í Skúlagarði!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.01.2005 16:55:58 / kósý

Þorrablótsfílingur

Jæja þá er ég komin eftir þó nokkuð hlé, aðal ástæðan fyrir því er að ég hef ekki komist í tölfu lengi og svo þegar ég hef ætlað mér að fara í tölvuna þá bara kemst maður ekki inn á þetta blogg dæmi!!

Já en á fimmtudaginn seinasta var konuklúbbskvöld heima hjá mér, það var mjög fínt, það voru allir voðalega fínir og sætir. Það var nefnilega svon gala dæmi þannig að allar áttu að vera í kjólum og voða fínar. Ég, ja eða Erna mín bauð upp á kampavín og alles, þannig að þetta kvöld heppnaðist vel. Það var reyndar gerð ein undantekning, þar sem að þetta er konuklúbbur það mega náttúrulega ekki vera karlkyns meðlimir en litla krúttið hennar Lindu í Sandó fékk að vera með, og hann er sko BARA sætur:D

En nú er þorrablótsvertíðin að byrja og maður er svona að detta í fílingin!! þetta verður örugglega skemmtilegt, svo verður líka gaman að sjá hvernig þeim fótboltagaurum tekst til við þetta:haha:

 En jæja verð að kveðja, þarf að fara og ná í karlómyndinda mína í braggann því EKKI getur hann farið að labba heim:$


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.01.2005 16:34:50 / kósý

Seint skrifa sumir en skrifa þó!!!

 Halló halló og  Gleðilegt ár:lol:!!!

Jæja þá er ég loksins komin aftur eftir smá hlé:|

Jólin mín voru´bara mjög fín, við litla fjölskyldan vorum hjá þeim í Lundi á aðfangadag, það var mjög gaman, skemmtilegast var að fylgjast með syni mínum opna pakkana sína!! Það var algjört bíó á tímabili:lol: En krakkinn fékk BARA 21 pakka!!! Þatta er náttúrulega bara geðveiki!! ÉG fékk nú ýmislegt í jólagjöf t.d Hring, rauðvínsglös,djúpsteikingarpott og já svo gjöfin sem að stendur upp úr, hún var nú frá henni Ernu minni og var það gjafabréf fyrir BRASELÍSTVAX!!! Það er  bara fyndið!! Hún sagði mér nú að ég gæti nýtt þetta gjafabréf í eitthvað annað en ég læt mig hafa þetta!!! Þetta er held ég fyndnasta jólagjöf sem að ég hef á æfinni fengið jafn fynda jólagjöf!!

Það gefur ýmislegt gerst síðan síðast, ég sagði ykkur frá því að Erna mín fór frá mér en hún hefur nú skilað sér aftur mér til mikilar ánægju og  haldið þið að GIN pelinn hafi ekki mætt í vinnuna á seinasta degi ársins og þá lét kella sig hafa það að fá sér sopa en reyndar ekki fyrr en eftir morgunmat:D Það fór nú lítið fyrir áramótunum hjá mér og mínum, við vorum í mat hjá mömmu og pabba, fórum svo á brennu og svo var horft á skaupið og síðan út að skjóta, svo heim um eitt að svæfa barnið og svo að sofa um 2!!!:haha:

En já þetta er gott í bili, ble ble!!!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun


Myndir
Könnun
Er ekki lífið DÁSAMLEGT???