Kósýland

Velkominn í minn heim

28.07.2008 01:39:47 / kósý

Andvaka.....

... já ég er andvaka og er að farast úr spenningi!! Ég er að fara inn á Akureyri í fyrramálið til að ná í Siggu mína:haha: og mig HLAKKAR SVOOOOOOO mikið til:haha: Hún ætlar að vera í rúma viku hjá mér:haha: Þannig að það er mikuð um gleði í mínu hjarta núna:haha: Það verður svo gott að fá hana loksins til mín aftur.. við hittumst alltof sjandan þar sem að hún býr bara í danaveldi og er ekkert á leiðinni að flytja þaðan.

Annars síðan síðast þá gekk afmælið hans Sindra mín bara ljómandi vel og hann var mjög ánægður með daginn:haha: Hann fékk fullt af flottum gjöfum og það var alveg ótrúlega gaman að fylgjast með' þeim öllum þegar hann var að opna pakkana sína því hinir afmælisgestirnir voru ekki síður spenntir og ánægðir með gjafirnar:haha: Við gáfum honum fótbolta mark og bolta og var farið beint í það að setja það saman svo að það væri hægt að fara út og skemmta sér:haha: Hann fékk líka alveg svakalega vatnsbyssu sem að var mikið notuð þennan dag, og mamma mín fékk nú líka aðeins að finna fyrir bunu úr henni:haha:

Það er búið að vera alveg órtúlega gott veður hérna síðustu daga og það liggur alveg við að maður bráðni bara hér. Við Ingvar vorum mikið úti í gær í göngutúrum og að hoppa á trampólíninu okkar. Við kíktum uppeftir til ömmu og afa og þar komst hann Ingvar minn nú í feitt.... afi var að vökva blómin sem að endaði svo í agalegum vatnslag þeirra á milli:haha: Hann nefnilega náði alveg hvernig þessi græja virkaði og náði henni fljótlega af afa og rennbleyti hann:haha::haha: Það var ansi skemmtilegt að fylgjast með þeim félögum.

Jæja ætli ég láti þetta ekki gott heita í bili og bið bara að heilsa að sinni og ég kannski reyni að yfirbuga spenninginn minn og komi mér í háttinn:haha:  see ya
Védís skrifaði
sumarblogg :)það er svo frábært þegar veðrið er gott, maður verður svo ánægður eitthvað. og ég er ánægð með ingvar, kallinn bara fljótur að sprauta afa sinn niður! haha
Svala Rut skrifaði
sæl elskan:* hafðu það rosa gott með siggunni þinni...:D ég veit hvað þú ert búin að hlakka til:D...verðum svo bara í bandi elskan:D
Erna skrifaði
Um að gera að sprauta á þessa afa :D
Skemmtið ykkur vel vinkonurnar og hagið ykkur illa...;)
íris skrifaði
ÉG ER Á SPÁNI! BARA GEDVEIKT :D

ég heyri í ter og leyfi ter kannski ad fretta eitthvad af mér :)

lovjú ;*
Óli Jón skrifaði
EG ER FULL A SPÁNI OG EG HEITI IRIS....:D
kristín ósk skrifaði
vitleysingarnir ykkar=) já íris það er eins gott að þú látir heyra eitthvað í þér kella mín, þú kvaddir mig nú ekki einu sinni almennilega=(
heituru ekki bara óli og ert fullur sjálfur á íslandi=)?
Óli Jón skrifaði
Ohh..hvernig fattaðiru það?
Ottó skrifaði
lol.
Íris skrifaði
Óli minn, tad er nu ekki búid ad renna af mér sídan ég kom.. vodalega dásamlegt :)
Ottó skrifaði
Jæja gamla kerling.
farðu nú að blogga eitthvað.
kosy skrifaði
hehehe kannski geri ég það.... kannski.... og kannski bara einhver staðar annarstaðar.... kannski
Stjana skrifaði
Á ekkert að fara að blogga um nýju vinnuna??
Ella Nóna skrifaði
Kvitt, kvitt og farðu svo að blogga.
erlaogfinn skrifaði
Klukk, klukk kíktu á mína síðu og gerðu eins.
erlaogfinn skrifaði
Hvað ætlar þú eiginlega að vera andvaka lengi?

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Myndir
Könnun
Er ekki lífið DÁSAMLEGT???