Kósýland

Velkominn í minn heim

07.05.2008 23:01:06 / kósý

Legið á bæn......

.... já á þessu heimili er legið á bæn þessa dagana... þó að ég sé kannski ekki sæu trúaðasta þá ákvað ég samt að ath hvort þetta mundi eitthvað virka:d Þannig er nefnilega mál með vexti að ég var í prófi á mánudaginn og mér fannst mér barasta alls ekki ganga neitt sérstaklega vel:evil: En það er reyndar kannski ekki alfarið mér að kenna þar sem að nokkrar spurningar þarna voru úr efni sem að ég hef bara aldrei séð!!! Ég nefnilega´fékk ekki allt frá kennaranum mínum sem að ég þurfti að lesa fyrir prófið!! en eins og ég segi það er bara legið á bæn og beðið og vonað að ég fái háa einkun fyrir ritgerðina mína og hin verkefnin sem að ég hef skilað, því þá er ég seif:$ Því sjálft prófið gildir ekkert svo svakalega mikið allavega ekki mikið miðað við allt hitt:!: Svo komst ég að því núna á mánudaginn að ef að allt gengur upp þá ætti ég að útskrifast um jólin8| Ég var ní frekar hissa því ég hélt að ég ætti mikli meira eftir,  en þá á æeg bara einn áfanga eftir sem að ég fer í haust sem er Heilbrigðis og lyfjafræði8| og ef ég næ því þá er ég orðin Félagsliði:!: og þá komum við að öðru vandamáli...... hvað á ég að gera????? Ég nefnilega hélt eins og ég sagði hérna áðan að ég ætti meira eftir og hefði þar af leiðandi meiri tíma til að hugsa um það hvað ég ætlaði að gera svona í náinni framtíð....en nei það er bara ekki mikill tími til þess!!  Þannig að ég er bara alveg komin í mínus!.... langar mig að læra meira?...... ætla ég að búa hér áfram með þessa menntun...... vinna í fjallalambi áfram með þessa menntun sem að nýtist mér ekkert þar?........ Ég bara er alveg í vandræðum...... það er um svo margt að hugsa.... hvað vil ég búa....? er ég eitthvað betur sett annarstaðar....? Ég veit samt að mig langar meira að vinna með fötluðum börnum frekar en öldruðum og það verður bara að segjast að það er ekki mikið um  slíka vinnu að fá hér á bæ:!:  já þetta er stembið.....
en já annað gengur sinn vanagang bara... mikið að gera í vinnunni allir að panta böns af grillkjöti og maður er bara á haus í því, eins skemmtilegt og það er:evil::haha:

Jæja ég er hætt að tuða hérna inni í bili og bið bara að heilsa:haha:
see ya!!!!
Svala Rut skrifaði
hæhæ..:D Við vonum bara það besta..ég trúi ekki öðru en að þú rúllir þessu upp..þú ert svo mögnuð..sjáumst svo á föstudaginn..:P
ólöf skrifaði
ég legg til fluttnig uppá miðnesheiði og að þú farir í frumgreina deild í keili og lærir svo eithvað sniðugt þar og komir síðan aftur á kópasker og rúlir yfir fjallalambi :)
Védís skrifaði
ég öfunda þig ekki...uhh ég man eftir því að raða grillkjöti í poka og ég fæ vægan hroll niður bakið. en kristín mín, þér gekk eflaust betur en þú heldur því það er alltaf þannig hjá manni, og svo tekuru bara næsta áfanga og útskrifast um jólin. Síðan getur þú farið að hugsa hvað þú vilt, þarft ekki að húrra af stað eitthvert út á land sama dag og þú gerist félagsliði;) ég held það sé afar gefandi að vinna með fötluðum börnum og ég held að það vanti fólk í þann bransa t.d. fyrir sunnan...
Sigga í DK skrifaði
Sko Stína mín!!! mér er alveg sama þótt að ég hafi ekki setið með þér í þessu prófi og séð hvað þetta gekk illa...ég er búin að ákveða að þú færð á mili 7-8 á þessu prófi og með þessar súper dúper einkunnir sem að þú ert búin að ná þér í í þessum vekefnum og ritgerð þá held ég að þú sért búin að ná áfanganum með góðri einkunn :D ég er ekkert smá stolt af þér skvísa!!!
Einar skrifaði
Þú getur séð um Óla Jón af og til með þessa menntun!
Óli Jón skrifaði
Ég er nú svo aldeilis hlessa...ég hélt nú að þú værir meir maður enn þetta Einar...geturu ekki sagt þetta bara feis to feis við mig eða? Að þér finnist ég vera fatlaður? Hnuss!
Einar skrifaði
Þú getur séð um Óla Jón af og til með þessa menntun!
Einar skrifaði
Afsakaðu Óli Jón að athugasemdin mín kom aftur, rak mig í einhvern helvítis takka. Þetta er nú ekki spurning um að segja eitthvað andlit í andlit, ég sit hérna við hliðin á þér og óttast ekki að segja þér þetta á einn né neinn hátt. Ég var aðeins að hugsa um þinn hag, og að reyna að finna vinnu fyrir Kristínu Ósk.
Óli Jón skrifaði
Að hugsa um minn hag? Mér finnst nú frekar að þú ættir að hugsa um þinn eiginn hag frekar heldur enn að vera að koma með svona komment um mig. Þú ert bókstaflega að segja að ég sé fatlaður. Ég er að hugsa um að kæra þig fyrir meinyrði!
Einar skrifaði
Ég var ekkert að segja að þú væri fatlaður frekar en gamall! Ef þú hefðir nú einu sinni nennt að lesa færsluna þá hefði þessi röksemdarfærsla þín ekki verið svona gjörsamlega út úr kú. Eina sem stakk upp á var að Kristín gæti annast þig vegna þess að hún er að læra að vinna með fólki með sérstakar þarfir. Ég er á engann hátt að gera lítið úr þér, særa æru þína eða þar fram eftir götunum. Þú ert að mistúlka orð mín og fara með fleipur!
Óli Jón skrifaði
Hvernig er hægt að mistúlka það þegar þú kommentar við færsluna hennar Kristínar, sem að hún er að skrifa um að hún vilji frekar vinna með fötluðum frekar enn gömlu fólki, og segir að hún geti annast mig. Þar með geri ég ráð fyrir því að þú sért að gefa það sterklega í skyn að þú teljir að ég sé fatlaður á einhvern hátt þar sem ekki er ég gamalmenni!
Einar skrifaði
Ég leit nú fram hjá þeim hluta færslunnar. Ég skoðaði innihald hennar í víðara samhengi, hún er að útskrifast sem félagsliði, þú varst nú einu sinni formaður hjá félagsliði í fótbolta og þannig fékk ég nú út að hún gæti annast þig, miðlað reynslu og annað til þín. Það er til háborinnar skammar að þú skulir hrapa svona á ályktunum, hún getur e.t.v kennt þér að sýna stillu!
Óli Jón skrifaði
Hvað getur maður sagt? það er kanski þú sem að Kristín þyrfti að annast því að það er greinilegt að þú ert eitthvað skemmdur. Að þú getir túlkað þennan pistil svona er bara fráleitt!
Einar skrifaði
Þú þarft að læra að hugsa í víðara samhengi ungi maður. Ég ætti kannski að sækja þig til saka fyrir að kalla mig skemmdan, það er það eina ærumeiðandi sem hefur komið fram í þessum skriftum okkar. Þú verður að vera málefnalegur, ræða málin í vinsemd og af eljusemi. Þýðir ekki að mistúlka hlutina svona.
Óli Jón skrifaði
Það varst þú enn ekki ég sem mistúlkaðir þetta..þú mistúlkaðir færsluna hennar Kristínar enn ekki ég. Og í guðnabænum kærðu mig skemmdi maður því að þá fáum við að sjá hvor vinnur. Fatlaði maðurinn eða skemmdimaðurinn!
Einar skrifaði
Þarna hefur þú laglega skotið sjálfan þig í fótinn. Þú ert sjálfur farinn að kalla þig fatlaðan, og heldur áfram að kalla mig skemmdan. Ég mistúlkaði færsluna ekki neitt, sá hvað hún var að fara með að það væri lítið að gera sem félagsliði á Kópaskeri, og fannst því gráupplagt að hún skildi vinna með þér, manni sem hefur reynslu á félagsliði. En hvað um það, við erum alveg steinhættir að læra og ég held að það sé kominn tími til að hætta þessu bulli hérna. Próf kl 09.30 í fyrramálið. Takk kærlega fyrir afnotin af síðunni Kristín Ósk, takk fyrir rifrildið Óli Jón ég er farinn upp að sofa!
Óli Jón skrifaði
Ég gæti haldið áfram í nótt enn ég held að þetta sé komið gott. Þetta var fínasta rifrildi enn við erum ekki búnir að útkljá þetta. Notum bara næstu færslu í það. veriði sæl að sinni og takk fyrir okkur.
Svala Rut skrifaði
Þið eruð nú meiri vitleysingarnir...:P Við verðum að fara að hittast Kristín mín þetta gengur ekki....Takk fyrir síðast
Elvar Már skrifaði
HAHAHAHAHAHAH þið eruð hálfvitar!
kristín ósk skrifaði
já þið eruð meiri vitleysingarnir.... gaman að fá svona rifrildarkomment ykkar á milli=) hehe

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Myndir
Könnun
Er ekki lífið DÁSAMLEGT???