Kósýland

Velkominn í minn heim

01.05.2008 00:17:32 / kósý

Læra og aftur læra

Halló og hæ8)
Já lífið snýst um lítið annað hjá mér þessa daganna en að læra.... já og vinna....og auðvita börnin mín:haha: En ég er annars alveg að verða búin á öllum þessu lærdómi en þetta er samt gaman ekki misskilja mig:!:´Ég er búin að hafa mjög gaman af þessu námi mínu þó svo að þetta sé bara eitt fag og ég hefði alveg viljað taka meira en það sem var í boði er mín barasta búin með. Ég hef komið sjálfri mér ansi mikið á óvart núna í þessu! Ég hef nú aldrei verið talin mjög sterkur námsmaður og´hef alltat átt frekar í erfiðleikum með það að læra, eitthvað annað en kvikindið hann brósinn minn:haha: En ég fékk út úr verkefni um daginn og fyrir það fékk ég 108| Ég velti þessu lengi fyrir mér og var eiginlega alveg ákveðin í því að kennarninn hefði nú gert einhverja vitleysu, annað hvort ætti að vera komma þarna á milli 1 og 0 eða þá að þetta ætti að vera öfugt..... líka þar sem að þetta var siðfræði verkefni8| Og það voru nú ekki allir að kaupa það að ég hafi fengið hátt í siðfræði:!: Ég fékk alveg að heyra "ÞÚ 10 Í SIÐFRÆÐI??? NEEEEIIIIII ÞAÐ GETUR EKKI VERIÐ" En jú gott fólk Kristín litla fékk 10 í siðfræði! og ekki nóg með það þá fékk ég aðra 10 fyrir annað verkefni sem að ég skilaði!!! Ég hef nú held ég nánast ALDREI fengið 10 fyrir eitthvað sem að ég hef gert í skóla og hvað þá28| Þannig að ég er bara búin að vera voða montin af sjálfri mér upp á síðkastið!! Á nú reyndar eftir að fá einkunn fyrir ritgerð sem að ég skilaði og ég býst nú ekki við neinni 10 þar.... og svo er próf á mánudaginn og ekki er ég að búast við því að ég geri einhverjar rósir þar..... ég hef aldrei verið mjög sterk í að taka próf.... verkefni eða ritgerðir allt í lagi en ekki próf.....:$ En það þýðir ekkert að vera svartsýnn..þetta gengur örugglega bara ágætlega....eða við segju það allavega:haha::haha:
Ég er alls ekki sátt við þetta veðurfar hérna úti...... það var svo æðislegt að fá svona sól og hita og maður var loksins að stíga upp úr skammdegis þunglyndinu og farin að lýta lífið björtum augum með vor í lofti og annað..... en NEI þessi þarna uppi er greinilega ekki í gúddífíling hérna!! Já já einmitt allir að fara í gott skap... nei það gengur náttúrulega ekki ..... best að hrúga snjó og einhverju ógeði á liðið núna!!! HALLÓ og góðann daginn sko..... það þarf eitthvað að senda gaurnum einhverjar gleðipillur!!! Thank´s for nothing!!!!hehe!!
En já annars er kannski ekki mikið annað að frétta nema það að hann Sindri minn ætlar að yfir gefa hreiðrið í mánuð í sumar og leika sér með Bensa út í Svíþjóð!! Ég veit ekki alveg hvernig mamma hans á eftir að höndla þennan tíma,þetta verður örugglega frekar skrítið að hafa han ekki hérna, en þetta á eftir að vera alveg meiri háttar ævintýri fyrir hann og þá er bara ekkert nema gott að segja um það:haha:
Jæja bið að heilsa í bili....... seeeeeee ya!!
Sigga Sønderborg skrifaði
Hahahaha thanks for nothing er nottla BARA snilld hehehehehe!! Víkingur kemur sterkur inn ;) ég vorkenni þér nú soldið Kristín mín að missa hann Sindra frá þér í mánuð en þú mátt hringja í mig hvenær sem er til að losa um pirring ;) ég veit að þú átt eftir að rúlla upp þessu prófi....eftir að hafa fengið 10 í siðfræði þá er þér ekkert að vanbúnaði :D Sakna þín rosa rosa mikið....kveðjur úr 20 stiga hitanum í Danmörkinni :)
Dúna skrifaði
Flott hjá þér að fá 10. Ég verð ánægð ef ég næ þessum þrem fögum sem ég er í. Bestu áfangarnir eru þeir sem eru próflausir, próf bara stressa og gera mann að hálfgerðum hálvitum(maður man ekkert í prófum)Sindri að fara út? gaman fyrir hann örugglega, en skil að það verði tómlegt hjá þér. Knús og kossar til ykkar.
Svala Rut skrifaði
hæ elskan..:D Það er bara glæsilegt hjá þér að fá þessar tíur..sínir það bara að þú getur gert allt !!!Sindri á örugglega eftir að skemmta sér konunglega út í Svíþjóð og skiljanlega verður það skrýtið að hafa hann ekki...hittumst á laugardagskvöldið:);) loflof
erlaogfinn skrifaði
Til hamingju með tíurnar, flott hjá þér. Farðu bara úr snjónum og komdu í heimsókn til mín, hér er veðrið mjög gott ;).
Íris skrifaði
iss helduru að það sé ekki fínt að fá smá snjó.. minna okkur á það hvað við höfum það gott þegar allt góða veðrið kemur í sumar ;) úllalla..

heyri í þér ;*

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Myndir
Könnun
Er ekki lífið DÁSAMLEGT???