ég gerðist svo fræg að fara´í ýdali í gær og þanngað hef ég ekki komið í ein 7 ár

. Það ver Pink Floyd show og var það bara alveg meiri háttar og þakka ég öllum samferðamönnum mínum fyrir skemmtilegt kvöld þarna í dölum!!!

En svona án gríns þá var þetta alveg geggjað ég sé sko ekki eftir að hafa farið á þetta.... brá reyndar aðeins þegar hann Óli Jón byrjaði að arga þarna einhversstaðar út úr vegg en hjartað náði fljótt að jafna sig

Ég náði einhvernveginn með minni eins´tæðu heppni að slasa mig örlítið...ég var að fara af pallinum niður á svokallað dansgólf og gleymdi alveg að þar voru tröppur og fann svo að ég var alveg að detta á andlitið og ekki leyst mér nú á það þannig að einhvernveginn fór ég að því að bjarga mér frá því að hrinja þarna á andlitið fyrir framan allt ´þetta fólk,,þannig að kúlið er seif


en ég er ennþá að drepast í lærinu

Eftir Ýdali þá var haldið á vík húsar og þar var stefnan tekin á pakkhúsið þar sem hann Einar átti að trúbbast. Það var bara hin ágætasta skemmtun, reyndar gekk nú eitthvað illa að stilla þarna upp og fá eitthvað sánd í draslið en þetta reddaðist. Ég fékk nú ekki dansinn við brósann minn sem að ég var búin að bíða spennt eftir vegna ölvunar samferðamanna hans



þannig að hann þurfti að yfirgefa pleisið snemma en ég á það þá bara inni!! hehe! Églenti í rifrildi í gær en það rifrildi er nú ekkert nýtt á nálinni..hef ansi oft upp á síðkastið þurft að rífast um þetta málefni við hann Einar.... en hann stendur alveg fastur á því að ég og brósi séum bara alveg eins og ekki er ég sammála á því og það er nokkuð greinilegt að þetta rifrildi er ekki að ganga mjög vel hjá okkur Einari þar sem að við erum bæði frekar þrjósk og höfum bæði alveg órtúlega rétt fyrir okkur...!!! ef ekki ennþá búin að sjá fyrir endan á þessari deilu

Það var vinna í morgun og ekki var nú góð mæting....ég og Kristbjörg vorum þær einu sem að mættu af okkar samferðarfólki....við erum klárlega harðastar!!!


Jæja ég held að ég láti þetta gott heita í bili og ætla að halda áfram að úldna hér í sófanum!!!!