Kósýland

Velkominn í minn heim

30.03.2008 18:53:04 / kósý

Fjallalambs dekurkvöldverðurinn

hæ hæ
já í gær vorum við í Fjallalambi með dekurkvöldverð, við elduðum allar steikurnar sem að við erum að framleiða og vorum líka með foréttina okkar og við þjónuðum svo fólki. Þetta gekk rosalega vel og það komu fullt af fólki í matinn til okkar, þetta gekk eiginlega miklu betra en við orðum að vona. Ég var á fullu allt kvöldið, byrjaði kl 12 um daginn í undirbúningi og ég fór úr Fjallalambi kl 12 um kvöldið. Þá var haldið á gistiheimilið í partý, ég stoppaði nú ekki lengi þar, ég held að ég hafi verið komin heim um hálf 2! Þannig að úthaldið var nú ekki mikið og ég fór eiginlega bara beinustu leið upp í rúm og rotaðist þar!

Svo er náttúrulega að styttast í Berlínarferðina okkar hjá Fjallalambi, mig hlakkar alveg rosalega til... sérstaklega er tilhlökkunin fólgin í því að Sigga mín kemur til mín!! Ég hef ekki séð hana síðan í sumar þegar hún heimsótti okkur á skerið.

Svo er það skattaskýrslu helv... sem að hangir yfir höfði mínu, en hún Lísa ætlar að hjálpa mér við hana og er meiningin að fara í hana á morgun.

Einnig er það ritgerðin mín sem að hangir aðeins yfir mér líka, reyndar á ég nú eftir til að hún sé tilbúin!! Þannig að það hlýtur að reddast:haha:

Já ég hef nú ekki mikið að segja og þetta er örugglega afspyrnu leiðinlegur pistill hjá mér en það verður bara að hafa það!!! Ég get vonandi komið með einhvern voða hressan og skemmtilegan pistil eftir Berlínarferðina:haha:

Bið að heilsa í bili8)
Íris skrifaði
ómægoood.. spennandiiii ;D
Sigga í DK skrifaði
Öss pöss...ég er orðin svo spennt Kristín mín að þú trúir því ekki :o) ég get ekki beðið eftir því að fá að knúsa þig loksins!!! Það er sko eins gott að við gerum eitthvað af okkur sem verður að ritskoða áður en það fer á veraldarvefinn hahahaha!! Nú er bara að bíða....

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Myndir
Könnun
Er ekki lífið DÁSAMLEGT???