26.02.2008 23:34:04 / kósý
Hvað er eiginlega málið......
.... með barnaefnið í dag???!!! Ég er bara ekki að skilja þetta, það mætti halda að þeir sem eru að búa til barnaefni í dag haldi hreinlega barasta að börn séu hálfvitar. Þetta er alveg með ólíkindum, auðvita kemur eitt og eitt svona inn á milli sem að er í lagi en halló!!!! Hvað varð um Kærleiksbirnina, Brúsk Íkorna eða Bangsa bestaskinn!!! Það var sko alvöru!!!! Það getur vel verið að foreldrum mínum hafi fundist þessir þættir vera algjört frat en í minningunni er þetta alveg snildarbarnaefni!!! Mig langar agalega til a sjá eitthvað af þessu aftur og já strumparnir, ahhh good times!! Stundum langar mig bara að fá að vera barn aftur og þurfa ekki að hafa áyggjur af neinu og þurfa ekki að hafa neina ábyrgð, það væri svoooo gott!
En já það var nú ekkert meira merkilegt sem að ég hef að segja, var bara að horfa á barnaefnið með drengjunum mínum í dag og ég var alveg hneiksluð!!! Bið bara að heilsa í bili