Kósýland

Velkominn í minn heim

18.02.2008 23:27:42 / kósý

Ekki svo lokuð eftir allt saman=)

Það er nokkuð ljóst að ég verð að fara að trúa meira á sjálfa mig;) Ég var ekkert svo lokuð eftir allt saman, ég gerði þetta fína verkefni og er bara nokkuð ánægð með það8) Gunna Magga kom til mín og fór yfir það með mér og hún setti nú lítið út á það þannig að ég er bara nokkuð brött með mig:d
Ég get ekki sofnað núna og er eiginleg frekar pirruð bara yfir því, ekkert alvarlega samt, var sko að svæfa strákana áðan og sofnaði með þeim og vaknaði svo aðeins og ákvað  að það væri bara best að koma sér í háttinn af því að ég var svo þreytt, en svo þegar ég var lögst upp í rúm þá hringdi síminn og ég rauk hérna fram og varð svona agalega fersk við það þannig að hér ér ég:haha:
Það er svo sem ekkert mikið að frétta hér hjá mér og mínum en ekkert slæmt svosem þannig að það hlýtur að teljast nokkuð gott;)
Ingvar Örn er alltaf að verða duglegri og duglegri að tala og maður fær oft einhverja skammarræður frá honum sem maður skilur bara svona eitt og eitt orð en það er samt bara fyndið:haha:
Þorrablótsatriðið frá Ottói var alveg snilld, ég sá það reyndar ekki á blótinu sjálfu því að ég fór heim að svæfa og það var sýnt akkúrat á meðan, en eins traustur og góður vinur hann Ottó minn er þá kom hann til mín á sunnudaginn áður en hann fór til Rvk og sýndi mér atriðið- Takk fyrir það:haha: Maður sá nú samt kannski aðeins meira þarna en það sem maður er vanur en maður tekur því bara:haha:
En já ég er að hugsa um að láta þetta gott heita í bili þannig að ég kveð að sinni:haha:
See ya8)
Leó Leós skrifaði
Gott að eiga góða vini... sérstaklega þá sem passa upp á það að maður missir ekki af neinu.
Kristín Ósk skrifaði
Já það er alltaf gott að eiga svoleiðis vini og það er hann ottó minn svo sannarlega=)
Svala Rut skrifaði
Hæhæ:D, það var voðalega gaman að sjá þig á blótinu...Nú lofa ég að ég fer að kíkja í heimsókn, einhverja helgina;)
Sandra Huld Helgudóttir skrifaði
Hæ elskan... ég verð að vera duglegri að koma í heimsókn til þín!.. er það ekki?;p þetta er mögnuð síða hjá þér.. en jamm er í tíma svo við herumst bara sem fyst.. bæjó:)
°Ottó skrifaði
Meira en þú ert vanur?
Þú átt við Miklu Meira Og Stærra En Þú hefur Einhvern Tíma Séð.

aaa. vissi það.
Dúna skrifaði
Knús og kossar.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Myndir
Könnun
Er ekki lífið DÁSAMLEGT???