Kósýland

Velkominn í minn heim

13.02.2008 23:51:24 / kósý

lokuð!!!!

Já mikið rétt ég er alveg lokuð!!! Ég er að reyna eftir minni bestu getu að læra heima:$ Það er nú ekkert að ganga neitt rosalega vel þar sem að ég er barasta alveg lokuð fyrir þessu. Ég er að reyna ð gera verkefni um það hvaða tilfinningar börn geta verið að glíma við, með hinum ýmsu spurningum og hegðunum. Auðvita er það mjög einstaklingsbundið því ekkert 1 barn er eins og guði sé lof fyrir það:haha: Allavega eru synir mínir ekkert líkir nema kannski bara skapið:haha: En allavega er ég búin að sitja hérna sveitt við það að reyna að leysa þetta verkefni en ég held að ég verði að játa mig sigraða allavega í kvöld og reyna bara að byrja upp á nýtt á morgun;)

Annars fórum við Sindri Þór á Akureyri á laugardaginn og Íris okkar kom með okkur. Það gekk bara mjög vel hjá tannlækninum en hann hafði aðeins áhyggjur af því hvort tannlæknirinn þyrfti nokkuð að bora í tennurnar hans, og svo var hann alltaf að spyrja út í öll þessi hljóð sem hann var að heyra fram á biðstofu og hvort þau myndu öll vera þegar hann færi þarna inn:d En þær tennur sem eftir í honum eru eru allar bara heilar og fínar! Eftir tannlæknaferðina þá var haldið upp á ma vistina að ná í Kristveigu og þaðan farið á Glerártorgið til að kíkja aðeins í búðir og næra sig. Að því loknu var svo haldið í haggarann og aðeind blóðgað budduna þar:evil: Að öllu búðarrápi loknu:haha: var svo haldið á skautasvellið og gert sig kláran til að sýna snildartakta á sdkautasvellinu. Ég gamla konan náði nú að toppa þessar ungu stúlkukindur og halda mér uppistandandi:haha: Annars var ég ótrúleg stolt móðir þennan dag!!! Mér fannst Sindri Þór alveg ótrúlega duglegur að halda sér uppistandandi miðað við það að þetta var bara í annað skiptip sem hann fer að skauta á skautum:haha: 
Á heimleiðinni stöppuðum við á Húsavík og tókum með okkur pizzu í H'ol sem að við borðuðum þar með heimilisfólki, við vorum komin hér á skerið um hálf 9 held ég.

Já ég nenni ekki að skrifa meira hérna núna það bíður betri tíma bara see ya beibís:haha: 
iris skrifaði
ohhh.. við erum svo flippaðar!

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Myndir
Könnun
Er ekki lífið DÁSAMLEGT???